7/17/2020
Ákvarðanir 2016
kosningu utan kjörfundar svo fljótt sem kostur er eftir að kjördagur hefur verið auglýstur, en þó ekki fyrr en átta vikum fyrir
kjördag. Af 1. mgr. 30. gr. og 57. gr. laga nr. 24/2000 leiðir að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við kosningar til Alþingis getur
þannig hafist átta vikum fyrir kjördag eða 41 degi áður en fimmtán daga framboðsfresti við þær lýkur. Samkvæmt því hefur
löggjafinn ákveðið að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar geti byrjað við kosningar til Alþingis þótt ekki liggi endanlega fyrir
hverjir bjóði sig þar fram. Vegna fyrrgreindrar tilvísunar 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 gildir sama regla við forsetakjör án tillits
til þess að það valdi því að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar geti hafist þremur vikum áður en fimm vikna framboðsfresti lýkur
og í það minnsta fjórum vikum áður en auglýst er eftir 4. gr. sömu laga hverjir séu í kjöri. Þessu getur orðalag fyrri málsliðar 1.
mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 ekki breytt, en til þess verður og að líta að ef ekki væri unnt að beita ákvæði 57. gr. laga nr. 24/2000
við forsetakjör myndi engin lögfest regla gilda um hvenær atkvæðagreiðsla utan kjörfundar gæti hafist þar. Þá verður einnig að
taka tillit til þess að rúmur tími til slíkrar atkvæðagreiðslu er settur kjósendum til hagsbóta samhliða því að þeir geti allt fram á
kjördag kosið á nýjan leik eftir áðurnefndum ákvæðum 88. gr. og 2. mgr. 91. gr. laga nr. 24/2000, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr.
36/1945, en þann rétt getur kjósandi meðal annars nýtt hafi hann greitt atkvæði utan kjörfundar manni, sem síðan reynist ekki
vera í framboði við forsetakjör, eða vilji hann fremur greiða öðrum frambjóðanda atkvæði sitt. Að þessu öllu virtu eru ekki efni
til að verða við kröfu í kæru um ógildingu forsetakjörs 25. júní 2016.
Föstudaginn 8. júlí 2016
Endurrit
úr
gerðabók
Hæstaréttar við kjör forseta Íslands
---ooo000ooo---
Ár 2016, föstudaginn 8. júlí, er þing Hæstaréttar sett í dómhúsi réttarins af hæstaréttardómurunum Markúsi Sigurbjörnssyni,
Benedikt Bogasyni, Eiríki Tómassyni, Karli Axelssyni, Viðari Má Matthíassyni og Þorgeiri Örlygssyni og Ingveldi Einarsdóttur
settum hæstaréttardómara.
Hæstarétti bárust 24. júní 2016 kærur „um lögmæti utankjörstaðakosninga vegna forsetakosninga 2016“ frá Ástþóri
Magnússyni, Sverri Ólafssyni og Páli Siggeirssyni, sem hér á eftir verða sameiginlega nefndir kærendur. Í kærunum var þess
krafist að forsetakosningum „25. júní 2016 verði frestað eða þær úrskurðað[ar] ógildar“. Meginmál þessara þriggja kæra er
samhljóða og verður því tekin ákvörðun um þær í einu lagi. Með því að þær lúta að atriðum, sem eiga eftir ákvæðum laga nr.
36/1945 um framboð og kjör forseta Íslands undir innanríkisráðherra, gaf Hæstiréttur ráðuneyti hans kost á að koma á
framfæri athugasemdum og bárust þær réttinum 29. júní 2016.
Svo sem að framan segir gerðu kærendur þær kröfur í kærum sínum að annaðhvort yrði forsetakosningum 25. júní 2016
frestað eða þær ógiltar. Um þessar kröfur er þess að gæta að Hæstiréttur hefur í fyrri ákvörðunum sínum um kærur vegna
forsetakjörs ítrekað slegið því föstu að í lögum nr. 36/1945 sé ekki að finna heimild handa réttinum til að taka til
efnismeðferðar kröfur varðandi ólögmæti kjörs, þar á meðal vegna atriða sem varða undirbúning eða framkvæmd þess, fyrr en
það er um garð gengið, sbr. meðal annars ákvarðanir frá 15. og 22. júní 2016. Með því að ljóst var af þessum sökum að
kærurnar, sem hér eru til úrlausnar, væru ekki tækar til efnismeðferðar að því er varðaði kröfur kærenda um frestun
forsetakosninga, taldi Hæstiréttur ekki efni til að taka ákvörðun um þær fyrir kjördag, heldur að rétt væri að bíða fram yfir þann
dag og líta svo á að þær fælu einungis í sér kröfur um ógildingu forsetakjörsins, sbr. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 36/1945. Því til
samræmis koma þær kröfur einar hér til úrlausnar.
Að ákvörðun þessari standa sjö af dómurum Hæstaréttar, sbr. 4. mgr. 7. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla.
I
Samkvæmt auglýsingu forsætisráðherra 5. mars 2016 fór kjör forseta Íslands fram 25. júní 2016. Í auglýsingunni var tekið
mið af því að samkvæmt 4. gr. laga nr. 36/1945 beri þeim, sem hefur hug á að gefa kost á sér í forsetakjöri, að skila til
innanríkisráðuneytisins ekki síðar en fimm vikum fyrir kjördag framboði ásamt tilteknum fjölda meðmælenda úr hverjum
landsfjórðungi og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir séu kosningarbærir, sbr. 1. mgr. 3. gr. sömu laga, en framboðsfrestur í
þessu forsetakjöri rann þannig út 20. maí 2016. Í samræmi við 4. gr. laganna birti innanríkisráðherra auglýsingu 25. maí 2016,
þar sem fram kom að níu nafngreindir menn væru í framboði við forsetakjörið. Áður en þetta lá fyrir hafði atkvæðagreiðsla
utan kjörfundar staðið yfir á fjórðu viku eða frá 30. apríl 2016.
Í kærum allra kærendanna þriggja er vísað til þess að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hafi byrjað „áður en kjöri var lýst.“
Þeir kveðast hafa orðið þess varir að kjósendur, til dæmis á Norðurlöndunum, hafi þurft að fara langan veg til að greiða
atkvæði á þennan hátt og megi af því sjá „að fyrirkomulagið sé eitthvað ekki í lagi.“ Áður en framboðsfresti lauk hafi sitjandi
forseti meðal annarra tilkynnt að hann myndi bjóða sig fram, en dregið það síðan til baka. Í 4. gr. laga nr. 36/1945 sé „því lýst
hvernig og hvenær hverjir séu í kjöri“, en í 6. gr. laganna sé „aðeins vísað til þeirra sem í kjöri eru.“ Geti því atkvæðagreiðsla
utan kjörfundar ekki hafist „fyrr en það er búið að sinna skyldu 4. gr.“ Af þeim sökum hafi verið óheimilt að láta
https://www.haestirettur.is/akvardanir/2016/
10/17