7/17/2020 Ákvarðanir 2016 Ár 2016, miðvikudaginn 20. júlí, er þing Hæstaréttar sett í dómhúsi réttarins af hæstaréttardómurunum Markúsi Sigurbjörnssyni, Benedikt Bogasyni, Eiríki Tómassyni og Þorgeiri Örlygssyni og Ingveldi Einarsdóttur settum hæstaréttardómara. Hæstarétti barst 17. júlí 2016 kæra um ólögmæti forsetakjörs frá Bjarna V. Bergmann, sem hér á eftir verður nefndur kærandi. Hann krefst „ógildingar á kjöri forseta Íslands, sem stóð frá 30. apríl 2016 fram til kjördags“ 25. júní sama ár. Um heimild til kæru vísar kærandi til 2. mgr. 14. gr. laga nr. 36/1945 um framboð og kjör forseta Íslands. Með því að kæran lýtur að atriðum, sem eiga eftir ákvæðum þeirra laga undir innanríkisráðherra, gaf Hæstiréttur ráðuneyti hans kost á að koma á framfæri athugasemdum og bárust þær réttinum 19. júlí 2016. Að ákvörðun þessari standa fimm af dómurum Hæstaréttar, sbr. 4. mgr. 7. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla. I Samkvæmt auglýsingu forsætisráðherra 5. mars 2016 fór kjör forseta Íslands fram 25. júní sama ár. Í auglýsingunni var tekið mið af því að samkvæmt 4. gr. laga nr. 36/1945 beri þeim, sem hefur hug á að gefa kost á sér í forsetakjöri, að skila til innanríkisráðuneytisins ekki síðar en fimm vikum fyrir kjördag framboði ásamt tilteknum fjölda meðmælenda úr hverjum landsfjórðungi og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir séu kosningarbærir, sbr. 1. mgr. 3. gr. sömu laga. Framboðsfrestur í forsetakjörinu rann þannig út 20. maí 2016. Um rök fyrir kröfu sinni vísar kærandi annars vegar til þess að samkvæmt tilkynningum utanríkisráðuneytisins 28. apríl 2016 og innanríkisráðuneytisins 30. sama mánaðar hafi síðastgreindan dag mátt hefja atkvæðagreiðslu utan kjörfundar, bæði innanlands og erlendis. Framboðsfresti við forsetakjörið hafi þó ekki lokið fyrr en 20. maí 2016 og hafi innanríkisráðherra birt auglýsingu 25. sama mánaðar, þar sem komið hafi fram hverjir væru í framboði. Kærandi telji að helst verði ráðið að ákvörðun um að hefja mætti atkvæðagreiðslu utan kjörfundar 30. apríl 2016 hafi verið tekin með tilliti til 57. gr. laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis, þar sem segi að hefja skuli slíka atkvæðagreiðslu svo fljótt sem kostur sé eftir að kjördagur hafi verið ákveðinn, en þó ekki fyrr en átta vikum fyrir kjördag. Ákvörðun þessi hafi á hinn bóginn farið í bága við 6. gr., sbr. 4. gr. laga nr. 36/1945, enda segi í 1. mgr. fyrrnefndu lagagreinarinnar að kjósandi, sem greiði atkvæði utan kjörfundar, riti á kjörseðil nafn þess frambjóðanda, sem hann vilji kjósa af þeim sem í kjöri séu. Allt þar til innanríkisráðherra hafi birt auglýsinguna 25. maí 2016 hafi í raun engir frambjóðendur verið í kjöri og hafi kjósendur af þeim sökum ekki getað fyrir þann tíma greitt atkvæði utan kjörfundar í samræmi við 1. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945. Í þessu sambandi geti engu skipt að nafngreindir menn hafi áður lýst yfir að þeir hygðu á framboð, enda sé alkunna að slíkt kunni að verða dregið til baka. Með þessu hafi orðið veruleg hætta á að fyrir borð væru bornir almannahagsmunir, bæði gagnvart frambjóðendum, sem hafi átt rétt á að framboð þeirra hlytu sambærilega og réttláta meðferð stjórnvalda, og gagnvart kjósendum, sem hafi haft hagsmuni af því að vera upplýstir um valkosti sem hafi staðið þeim til boða í kosningunum. Hins vegar vísar kærandi til þess að hann hafi orðið þess var eftir að auglýsingin 25. maí 2016 var birt að búnir hafi verið til stimplar með nöfnum þeirra, sem hafi boðið sig fram í forsetakjörinu, og hafi stimplarnir verið notaðir upp frá því við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar. Þetta samrýmist ekki 1. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945, enda segi þar að við slíka atkvæðagreiðslu riti kjósandi nafn frambjóðanda á kjörseðil og sé hvergi í lögum að finna heimild til að stimpla á seðilinn. Í athugasemdum, sem innanríkisráðuneytið beindi til Hæstaréttar í tilefni af kærunni, segir að lög nr. 36/1945 séu fáorð um framkvæmd forsetakosninga og sé þar um flest sem hana varðar vísað til laga um kosningar til Alþingis. Þannig komi meðal annars fram í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 að um kosningaathöfn við forsetakjör, undirbúning hennar, atkvæðagreiðslu utan kjörstaða og á kjörstað fari í öðrum atriðum en þeim, sem beinlínis er mælt fyrir um í lögunum, eftir lögum um kosningar til Alþingis. Upphaf atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við forsetakjör hafi í samræmi við framangreind lagaákvæði alla tíð farið eftir reglum laga um kosningar til Alþingis sem hafi verið í gildi á hverjum tíma. Allt til ársins 1987 hafi atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við alþingiskosningar ekki getað byrjað fyrr en framboðsfrestur hafi verið liðinn, en á því hafi orðið breyting með lögum nr. 80/1987 um kosningar til Alþingis. Regla um þetta, sem þá var tekin upp, komi nú fram í 57. gr. laga nr. 24/2000, þar sem mælt sé svo fyrir að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar megi hefjast átta vikum fyrir kjördag. Samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 gildi þessi regla um forsetakjör, en hafa megi í huga að þótt hefja megi atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við kosningar til Alþingis með þessum fyrirvara renni framboðsfrestur við þær ekki út fyrr en 15 dögum fyrir kjördag. Þá verði jafnframt að gæta að því að samkvæmt 88. gr. og 2. mgr. 91. gr. laga nr. 24/2000, sem gildi við forsetakjör eftir 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945, geti kjósandi, sem greitt hefur atkvæði utan kjörfundar, gert það aftur hvort heldur á sama hátt eða á kjörfundi. Í athugasemdum ráðuneytisins er þess einnig getið að samkvæmt upplýsingum, sem það hafi aflað, hafi innan við 1.500 kjósendur greitt atkvæði utan kjörfundar við forsetakjörið á tímabilinu frá 30. apríl til 25. maí 2016. Þá vísar ráðuneytið til þess að ákvæðum 6. gr. laga nr. 36/1945 hafi verið breytt með lögum nr. 6/1984 meðal annars til þess að hægar yrði um vik að beita lögum um kosningar til Alþingis við forsetakjör. Í 47. og 62. gr. laga nr. 24/2000 sé í samræmi við ákvæði fyrri laga um alþingiskosningar mælt fyrir um notkun stimpla við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar og hafi það verið gert um árabil. Hafi þetta reynst sjóndöprum og hreyfihömluðum kjósendum þarfaþing og í mörgum tilvikum orðið til þess að þeir hafi ekki þurft á aðstoð að halda við atkvæðagreiðslu, en einnig hafi komið fram að notkun stimpla hafi dregið úr fjölda ógildra atkvæða. II https://www.haestirettur.is/akvardanir/2016/ 14/17

Select target paragraph3