7/17/2020 Ákvarðanir 2016 Í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945, eins og greininni var breytt með 2. gr. laga nr. 6/1984, kemur fram að kjósandi, sem greiðir atkvæði utan kjörfundar við forsetakjör, riti á kjörseðil nafn þess frambjóðanda, sem hann vill kjósa af þeim sem í kjöri eru. Atkvæði skuli ekki meta ógilt þótt sleppt sé kenninafni eða ættarnafn eitt sett ef greinilegt er eftir sem áður við hvern sé átt. Í lögunum er ekki mælt frekar fyrir um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við forsetakjör að öðru leyti en því að eftir 3. mgr. 6. gr. þeirra fer um þá atkvæðagreiðslu samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis eftir því sem við á. Síðastnefnd tilvísun í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 nær til ákvæða XII. kafla laga nr. 24/2000. Til þess kafla heyrir 57. gr. laganna, þar sem mælt er fyrir um rétt kjósanda til að greiða atkvæði utan kjörfundar. Þar segir meðal annars að hefja skuli kosningu utan kjörfundar svo fljótt sem kostur er eftir að kjördagur hefur verið auglýstur, en þó ekki fyrr en átta vikum fyrir kjördag. Af 1. mgr. 30. gr. og 57. gr. laga nr. 24/2000 leiðir að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við kosningar til Alþingis getur þannig hafist átta vikum fyrir kjördag eða 41 degi áður en fimmtán daga framboðsfresti við þær lýkur. Samkvæmt því hefur löggjafinn ákveðið að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar geti byrjað við kosningar til Alþingis þótt ekki liggi endanlega fyrir hverjir bjóði sig þar fram. Vegna fyrrgreindrar tilvísunar 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 gildir sama regla við forsetakjör án tillits til þess að það valdi því að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar geti hafist þremur vikum áður en fimm vikna framboðsfresti lýkur og í það minnsta fjórum vikum áður en auglýst er eftir 4. gr. sömu laga hverjir séu í kjöri. Þessu getur orðalag fyrri málsliðar 1. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 ekki breytt, en til þess verður og að líta að ef ekki væri unnt að beita ákvæði 57. gr. laga nr. 24/2000 við forsetakjör myndi engin lögfest regla gilda um hvenær atkvæðagreiðsla utan kjörfundar gæti hafist þar. Þá verður einnig að taka tillit til þess að rúmur tími til slíkrar atkvæðagreiðslu er settur kjósendum til hagsbóta samhliða því að þeir geti allt fram á kjördag kosið á nýjan leik eftir áðurnefndum ákvæðum 88. gr. og 2. mgr. 91. gr. laga nr. 24/2000, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945, en þann rétt getur kjósandi meðal annars nýtt hafi hann greitt atkvæði utan kjörfundar manni, sem síðan reynist ekki vera í framboði við forsetakjör, eða vilji hann fremur greiða öðrum frambjóðanda atkvæði sitt. Þegar af þessum ástæðum eru ekki efni til að verða við kröfu kæranda á grundvelli röksemda hans varðandi upphaf atkvæðagreiðslu utan kjörfundar. Um aðrar röksemdir kæranda er þess að gæta að í 1. mgr. 14. gr. laga nr. 36/1945 er ekki tæmandi talning á þeim ákvæðum laga um kosningar til Alþingis, sem beitt verður við forsetakjör, svo sem berlega verður ráðið af 3. mgr. 6. gr. fyrrnefndu laganna. Tilvísunin í þessu síðastgreinda lagaákvæði nær sem áður segir til XII. kafla laga nr. 24/2000, en í 2. mgr. 62. gr. þeirra laga, sem er að finna í þeim kafla, kemur fram að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við kosningar til Alþingis fari þannig fram að kjósandi stimpli eða riti á atkvæðaseðil bókstaf þess lista sem hann vill kjósa. Eftir 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 verður þessari reglu eðli máls samkvæmt beitt að breyttu breytanda við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við forsetakjör á þann hátt að kjósendum standi þar til boða stimplar með nöfnum frambjóðenda í stað stimpla með listabókstöfum við alþingiskosningar. Styðst þetta jafnframt við þau efnisrök að hagræði, sem sjóndaprir eða hreyfihamlaðir kjósendur geta haft af notkun stimpla við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við kosningar til Alþingis, er ekki síður fyrir hendi í slíkri atkvæðagreiðslu við forsetakjör, því ella þyrfti að rita fullt nafn frambjóðanda á kjörseðil. Við forsetakjör dregur þetta að auki enn frekar úr hættu á ógildi atkvæðis og kemur einnig í veg fyrir að kjörseðill beri fjölda bókstafa með rithönd kjósanda þannig að tryggt er að leyndar sé gætt um hvernig hann hafi greitt atkvæði. Að virtu öllu framangreindu verður ekki orðið við kröfu kæranda um ógildingu forsetakjörs 25. júní 2016. Miðvikudaginn 20. júlí 2016 Endurrit úr gerðabók Hæstaréttar við kjör forseta Íslands ---ooo000ooo--- Ár 2016, miðvikudaginn 20. júlí, er þing Hæstaréttar sett í dómhúsi réttarins af hæstaréttardómurunum Markúsi Sigurbjörnssyni, Benedikt Bogasyni, Eiríki Tómassyni og Þorgeiri Örlygssyni og Ingveldi Einarsdóttur settum hæstaréttardómara. Hæstarétti barst 17. júlí 2016 erindi frá Baldri Ágústssyni, þar sem hann kærir forsetakjör, sem fór fram 25. júní sama ár, með vísan til 2. mgr. 14. gr. laga nr. 36/1945 um framboð og kjör forseta Íslands. Hann krefst þess að forsetakjörið verði ógilt. Með því að kæra þessi lýtur að atriðum, sem eiga eftir ákvæðum fyrrnefndra laga undir innanríkisráðherra, gaf Hæstiréttur ráðuneyti hans kost á að koma á framfæri athugasemdum og bárust þær réttinum 19. júlí 2016. Að ákvörðun þessari standa fimm af dómurum Hæstaréttar, sbr. 4. mgr. 7. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla. I Samkvæmt auglýsingu forsætisráðherra 5. mars 2016 fór kjör forseta Íslands sem fyrr segir fram 25. júní sama ár. Í auglýsingunni var tekið fram að framboðum til forsetakjörs skyldi skila til innanríkisráðuneytisins, ásamt samþykki forsetaefnis, nægilegri tölu meðmælenda og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir væru kosningabærir ekki síðar en fimm vikum fyrir kjördag. Skyldi forsetaefni hafa meðmæli minnst 1500 kosningabærra manna, en mest 3000 sem skyldu skiptast eftir landsfjórðungum með nánar tilteknum hætti. Framboðsfrestur í þessu forsetakjöri rann þannig út 20. maí 2016. Í https://www.haestirettur.is/akvardanir/2016/ 15/17

Select target paragraph3