7/17/2020
Ákvarðanir 2016
þessu forsetakjöri rann út á miðnætti aðfaranótt 21. maí 2016.
Kærandi kveðst hafa stefnt að framboði til forsetakjörs, en af ástæðum, sem megi einkum rekja til villandi upplýsinga frá
yfirkjörstjórnum, hafi innanríkisráðuneytið ekki metið framboð hans gilt. Hafi ástæða þess verið sú að með framboðinu hafi
aðeins verið skilað vottorðum yfirkjörstjórna um kosningarbærni 820 meðmælenda úr Sunnlendingafjórðungi, þótt tala
meðmælenda úr öðrum landfjórðungum hafi verið nægileg. Í kærunni greinir kærandi frá samskiptum sínum við nafngreinda
menn, sem eigi sæti í yfirkjörstjórnum Suðurkjördæmis og Suðvesturkjördæmis. Segir kærandi manninn í fyrrnefndu
yfirkjörstjórninni hafa sagt sér að skila mætti listum með meðmælendum úr Sunnlendingafjórðungi til þeirrar kjörstjórnar ef
meiri hluti þeirra væri úr Suðurkjördæmi, en þegar skammt hafi verið til loka framboðsfrests hafi sami maður tilkynnt sér að
kærandi þyrfti sjálfur að skila listum með meðmælendum úr Suðvesturkjördæmi og báðum kjördæmum Reykjavíkur til
viðkomandi yfirkjörstjórna. Að því er varðar samskipti við mann í yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis segist kærandi hafa veitt
tilteknum manni umboð til að koma fram fyrir sína hönd í sambandi við forsetakjörið og hafi umboðsmaðurinn afhent
yfirkjörstjórnum í Suðvesturkjördæmi og Reykjavík meðmælendalista. Yfirkjörstjórnin í Suðvesturkjördæmi hafi 19. maí 2016
neitað að afhenda umboðsmanninum vottorð um kosningarbærni meðmælenda og beint því til kæranda að sækja það sjálfur.
Erfitt hafi reynst að koma því við og hafi þá kjörstjórnarmaðurinn sagt kæranda að hann „skyldi sækja um frest“ og fengi hann
vottorðið 21. sama mánaðar. Kærandi hafi að kvöldi 20. maí 2016 skilað framboði sínu til innanríkisráðuneytisins og hafi fylgt
því vottorð yfirkjörstjórna í öllum kjördæmum að frátöldu Suðvesturkjördæmi. Hann hafi þá óskað eftir fresti til 23. sama
mánaðar „til að skila gögnum sem upp á vantar, þ.e. meðmælendum úr Sunnlendingafjórðungi og vottorði yfirkjörstjórnar“, en
því hafi verið hafnað. Kærandi telji sig á framangreindan hátt hafa fengið rangar og villandi upplýsingar frá umræddum
yfirkjörstjórnum og hafi þetta valdið því að honum hafi ekki reynst unnt að skila framboði. Því krefjist hann þess að fyrirhugað
forsetakjör „verði dæmt ólögmætt“, en um heimild til að bera upp kæruna vísar hann til 2. mgr. 14. gr. og 2. mgr. 11. gr. laga nr.
36/1945.
Í athugasemdum, sem innanríkisráðuneytið beindi til Hæstaréttar í tilefni af framangreindri kæru, er vísað til þess að í
samræmi við 5. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 36/1945 hafi verið tiltekið í auglýsingu forsætisráðherra 5. mars
2016 að frambjóðendur til forsetakjörs þyrftu að leggja fyrir meðmæli frá minnst 1.215 kosningarbærum mönnum úr
Sunnlendingafjórðungi, 62 úr Vestfirðingafjórðungi, 163 úr Norðlendingafjórðungi og 60 úr Austfirðingafjórðungi. Kærandi hafi
náð þessum fjölda meðmælenda úr þremur síðastnefndum landsfjórðungum, en á hinn bóginn hafi hann einungis skilað
vottorðum yfirkjörstjórna um kosningarbærni 820 meðmælenda úr Sunnlendingafjórðungi. Í 4. gr. laga nr. 36/1945 sé enga
heimild að finna handa innanríkisráðuneytinu til að veita frambjóðenda frest fram yfir lok framboðsfrests til að afla fleiri
meðmælenda og vottorða yfirkjörstjórna um kosningarbærni þeirra. Hafi framboð kæranda því ekki verið gilt.
II
Samkvæmt 2. gr. laga nr. 36/1945 eru undirkjörstjórnir og yfirkjörstjórnir við forsetakjör þær sömu og við alþingiskosningar,
en auk þeirra skal Hæstiréttur hafa með höndum þau störf, sem mælt er fyrir um í lögunum. Þau störf felast nánar tiltekið í
fyrsta lagi í því að Hæstiréttur tekur við gögnum frá innanríkisráðuneytinu um framboð við forsetakjör og auglýsingu þess um
hverjir séu í kjöri, sbr. 4. gr. laganna. Í öðru lagi úrskurðar Hæstiréttur samkvæmt 2. mgr. 7. gr. laganna um hvort fresta þurfi
forsetakjöri vegna andláts forsetaefnis og undirbúa kjör að nýju. Í þriðja lagi ber Hæstarétti að halda sérstaka gerðabók um
málefni vegna forsetakjörs, sbr. 8. gr. laganna. Í fjórða lagi tekur Hæstiréttur samkvæmt 11. gr. laganna að afstöðnum
forsetakosningum við eftirriti úr gerðabókum yfirkjörstjórna og ágreiningskjörseðlum og boðar síðan forsetaefni eða
umboðsmenn þeirra til fundar, þar sem úrskurða skal um gildi ágreiningsseðla, lýsa úrslitum kosninga og gefa út kjörbréf
handa forsetaefni, sem flest atkvæði hefur hlotið, en rísi ágreiningur um kjörgengi forsetaefnis sker Hæstiréttur úr. Í fimmta
lagi gefur Hæstiréttur samkvæmt 12. gr. laganna út kjörbréf þegar að liðnum framboðsfresti handa forsetaefni, sem reynist
vera eitt í kjöri. Í sjötta lagi ber réttinum samkvæmt 13. gr. laganna að senda eftirrit af kjörbréfi til forseta Alþingis og þess
ráðherra, sem fer með málefni forseta Íslands. Loks tekur Hæstiréttur samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laganna við kærum um
„ólögmæti forsetakjörs“, öðrum en refsikærum, og leysir úr þeim, en þær verða að berast í síðasta lagi fimm dögum fyrir fund
samkvæmt 11. gr. laganna.
Í þeim ákvæðum laga nr. 36/1945, sem að framan eru rakin, er hvergi að finna heimild til að kæra til Hæstaréttar tilteknar
ákvarðanir eða gerðir ráðherra, kjörstjórna eða annarra stjórnvalda um undirbúning eða framkvæmd forsetakjörs. Almenna
heimildin, sem felst í 2. mgr. 14. gr. laganna til að beina til réttarins kærum um ólögmæti forsetakjörs, leiðir á hinn bóginn til
þess að leita megi eftir ógildingu forsetakjörs í heild, þar á meðal vegna afmarkaðra annmarka á undirbúningi þess eða
framkvæmd, en Hæstiréttur getur ekki á þeim grunni ógilt tilteknar ákvarðanir um slík efni eða breytt þeim. Kjör forseta Íslands
á að fara fram 25. júní 2016. Eðli máls samkvæmt getur Hæstiréttur ekki fjallað um gildi forsetakjörs sem ekki hefur verið
lokið. Þá verður kæra í þessu tilviki heldur ekki studd við 2. mgr. 11. gr. laga nr. 36/1945, sem kærandi hefur einnig vísað til,
enda snertir kæruefnið á engan hátt álitaefni um kjörgengi forsetaefnis samkvæmt 4. gr. stjórnarskrárinnar. Stendur því engin
heimild í lögum nr. 36/1945 til að beina erindi kærandans til Hæstaréttar og er því af þessum sökum vísað frá réttinum.
Föstudaginn 8. júlí 2016
https://www.haestirettur.is/akvardanir/2016/
4/17