7/17/2020
Ákvarðanir 2016
forsetakjörs 25. júní 2016 verður sá fundur haldinn föstudaginn 22. júlí 2016, svo sem auglýst var í Lögbirtingablaði 27. júní
sama ár. Kærufresti samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laga nr. 36/1945 lauk þannig klukkan 24.00 sunnudaginn 17. júlí 2016 og barst
fyrrgreint bréf ekki innan þess tíma. Þegar af þeirri ástæðu er kæru þessari vísað frá Hæstarétti.
Miðvikudaginn 20. júlí 2016
Endurrit
úr
gerðabók
Hæstaréttar við kjör forseta Íslands
---ooo000ooo---
Ár 2016, miðvikudaginn 20. júlí, er þing Hæstaréttar sett í dómhúsi réttarins af hæstaréttardómurunum Markúsi
Sigurbjörnssyni, Benedikt Bogasyni, Eiríki Tómassyni og Þorgeiri Örlygssyni og Ingveldi Einarsdóttur settum
hæstaréttardómara.
Hæstarétti barst 16. júlí 2016 kæra um ólögmæti forsetakjörs 2016 frá Guðmundi Rafni Geirdal Bragasyni, sem hér á eftir
verður nefndur kærandi. Hann vísar um heimild til kæru til 2. mgr. 14. gr. laga nr. 36/1945 um framboð og kjör forseta Íslands.
Með því að kæran lýtur að atriðum, sem eiga eftir ákvæðum þeirra laga undir innanríkisráðherra, gaf Hæstiréttur ráðuneyti
hans kost á að koma á framfæri athugasemdum og bárust þær réttinum 19. júlí 2016.
Að ákvörðun þessari standa fimm af dómurum Hæstaréttar, sbr. 4. mgr. 7. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla.
I
Samkvæmt auglýsingu forsætisráðherra 5. mars 2016 fór kjör forseta Íslands fram 25. júní sama ár. Framboðsfrestur í
forsetakjörinu rann út 20. maí 2016. Í samræmi við 4. gr. laga nr. 36/1945 birti innanríkisráðherra auglýsingu 25. sama
mánaðar, þar sem fram kom að í kjöri til forsetaembættisins væru níu nafngreindir menn.
Í kæru er ítarlega greint frá röksemdum kæranda, en þær snúa flestar að annmörkum, sem hann telur hafa verið á
kjörseðlum sem kjósendur fengu í hendur við atkvæðagreiðslu á kjörfundi 25. júní 2016. Vísar kærandi í þessu sambandi til
þess að á kjörseðlum hafi ekki komið fram orðið „forsetaefni“, en af 5. gr. stjórnarskrárinnar og 5. gr. laga nr. 36/1945, sbr.
einnig 11. gr. sömu laga, leiði að það hefði borið að gera. Aðeins hafi verið „notað orðið frambjóðendur á kjörseðlinum“, en
kærandi kveðst ekki minnast þess „hvort við tók orðalagið til forseta eða forseta Íslands“. Á kjörseðlunum hafi ekki verið vísað
til stjórnarskrárinnar, sem geri þá ólögmæta, og hafi heldur ekki verið getið um lög nr. 36/1945. Þá bendir kærandi á að
samkvæmt 6. gr. þeirra laga skuli kjósandi, sem greiði atkvæði utan kjörfundar, rita á kjörseðil fullt nafn forsetaefnis sem hann
vilji kjósa, en ætla megi samkvæmt jafnræðisreglu að borið hefði að tilgreina fullt nafn forsetaefna á kjörseðlum við
atkvæðagreiðslu á kjörfundi. Á því hafi á nánar tiltekinn hátt verið annmarkar varðandi þrjú af forsetaefnunum, en þörf hefði
verið á skýrari auðkenningu til að greina þessi forsetaefni frá öðrum sem beri sama nafn. Einnig hafi vantað að taka fram á
kjörseðlunum að setja ætti kross framan við nafn forsetaefnis og hafi í engu verið getið um hvort hann mætti setja aftan við
nafnið, yfir það eða „almennt í hæð við eitt tiltekið nafn.“ Ekki hafi verið prentaður auður ferningur framan við nöfn forsetaefna
til að setja kross í og þar hafi heldur ekki verið að finna „undirstrikunarlínu“ til að sjá mætti hvar ætti nákvæmlega að setja
slíkan kross. Jafnframt hafi vantað „lárétta dæld þvert á miðju kjörseðils, til að auðvelda kjósanda að brjóta kjörseðilinn rétt
saman“, en seðlarnir hafi verið á mjög þykkum pappír. Því hafi verið hætta á að kjósendum mistækist þetta þannig að aðrir
gætu séð hvernig þeir hafi greitt atkvæði og hafi kosning því ekki verið leynileg. Á kjörseðlunum hafi heldur ekki verið strik á
milli nafna forsetaefna. Jafnframt vísar kærandi til þess að í fyrirsögn fréttar frá 25. maí 2016, sem innanríkisráðuneytið hafi
birt á kosningavef sínum, hafi verið rætt um frambjóðendur til kjörs forseta Íslands 2016, en ekki um forsetaefni, svo sem hefði
átt að gera í samræmi við 1. mgr. 5. gr. stjórnarskrárinnar. Fréttin hafi því ekki verið gild eða lögmæt og eigi það sama við um
auglýsingar ráðuneytisins í útvarpi og Lögbirtingablaði hafi orðfæri þar verið það sama. Að auki hafi nánar tilteknir annmarkar
verið á efni á kosningavef ráðuneytisins, þar sem gefnar hafi verið leiðbeiningar um kjörgengi og framboð.
Í athugasemdum, sem innanríkisráðuneytið beindi til Hæstaréttar í tilefni af kærunni, segir að kjörseðlar við forsetakjörið 25.
júní 2016 hafi verið gerðir með svipuðum hætti og við margar undanfarnar forsetakosningar, bæði varðandi fyrirsögn á
seðlunum og tilgreiningu á nöfnum forsetaefna. Í lögum nr. 36/1945 sé ekki ráðgert að greint sé frá forsetaefnum á
kjörseðlum á annan hátt en hér var gert, enda hafi forsetakjörið áður verið auglýst. Áður en kjörseðlar voru prentaðir hafi
ráðuneytið kallað eftir óskum allra forsetaefna um hvernig nöfn þeirra skyldu rituð og hafi verið farið að þeim óskum í öllum
tilvikum, enda hafi forsetaefnin, sem vildu stytta nafnritun sína, talið að þannig myndu þau þekkjast best. Þá vísar ráðuneytið
til þess að fyrirmæli í 1. mgr. 52. gr. laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis um að prenta skuli ferning framan við hvern
listabókstaf á kjörseðlum við alþingiskosningar hafi verið tekin upp í þau lög með 7. gr. laga nr. 15/2003, en samsvarandi
breyting hafi ekki verið gerð á 5. gr. laga nr. 36/1945. Kjörseðlar við forsetakjör séu með einfaldara sniði en við
alþingiskosningar og hafi því væntanlega verið litið svo á að ekki væri þörf á að breyta síðastnefndu lagaákvæði á samsvarandi
hátt. Strik hafi verið prentuð þvert yfir kjörseðlana fyrir ofan og neðan nafn hvers forsetaefnis, strikin hafi öll verið jafnbreið og
hverju forsetaefni gefið sama rými á seðlunum. Eins og löngum hafi verið gert í almennum kosningum hér á landi hafi verið
https://www.haestirettur.is/akvardanir/2016/
12/17