7/17/2020 Ákvarðanir 2016 samræmi við 4. gr. laga nr. 36/1945 birti innanríkisráðherra auglýsingu 25. sama mánaðar, þar sem fram kom að níu nafngreindir menn væru í framboði við forsetakjörið. Í kæru er vísað til þess að innanríkisráðuneytið hafi látið frá sér fara fyrirmæli, sem kærandi nefnir svo, „um að hver meðmælandi mætti einungis mæla með einum forsetaframbjóðanda“. Fyrirmælin hafi virkað „tefjandi og sem bein hindrun við söfnun meðmælenda“ og orðið „jafnframt til þess, að nokkrir „frambjóðendur“ náðu ekki nægum fjölda meðmælenda og féllu út.“ Kærandi hafi verið einn þeirra. Í kærunni er síðan komist svo að orði: „Ljóst er og óviðunandi, að einstaklingar misstu af því að nota stjórnarskrárbundinn rétt sinn til framboðs forseta Íslands beinlínis vegna fyrirmæla frá innanríkisráðuneytinu, sem ekki eiga sér stoð í lögum.“ Í kæru, sem Hæstarétti barst frá kæranda 8. júní 2016 og vísað er til í umræddri kæru hans, kemur meðal annars fram að í lögum nr. 36/1945 verði ekki fundin regla um bann við því að sami maður gerist meðmælandi tveggja eða fleiri frambjóðenda. Þótt vísað sé í þeim lögum um ýmis atriði til ákvæða laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis, sé hvergi í lögum nr. 36/1945 vitnað til VII. kafla laga nr. 24/2000 eða 3. mgr. 34. gr. þeirra, sem heyri til þess kafla. Regla sem þar sé að finna um að ekki skuli telja mann, sem gerist meðmælandi fleiri en eins framboðslista við alþingiskosningar, til meðmælenda nokkurs listans gildi því ekki við forsetakjör. Af þessum sökum telur kærandi „að krafan um að hver meðmælandi megi aðeins mæla með einum frambjóðanda, sé ólögleg krafa ... sem leiði til þess, að kosningarnar 25. júní sl. séu ógildar.“ Í athugasemdum, sem innanríkisráðuneytið beindi til Hæstaréttar í tilefni af framangreindu erindi, segir að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 fari um kosningaathöfnina sjálfa, sem og undirbúning hennar, atkvæðagreiðslu utan kjörstaða og á kjörstað að öðru leyti samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis eftir því sem við á. Gildi því ákvæði laga nr. 24/2000 um meðmælendur við forsetakjör að því leyti sem annað leiði ekki af ákvæðum laga nr. 36/1945. Vegna þessa gildi 3. mgr. 34. gr. laga nr. 24/2000, sem áður var getið, sbr. einnig 2. mgr. 33. gr. sömu laga, um forsetakjör. Þá er tekið fram að þó að ráðuneytið hafi í kynningarefni sínu vakið athygli á því að hverjum meðmælanda sé einungis heimilt að mæla með framboði eins forsetaefnis séu það yfirkjörstjórnir sem yfirfari og taki afstöðu til meðmælendalistanna og gefi vottorð um fjölda kosningabærra meðmælenda hvers forsetaefnis, sbr. 4. gr. laga nr. 36/1945 og ákvæði VII. kafla laga nr. 24/2000, sbr. 3. mgr. 6. gr. fyrrgreindu laganna. II Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. stjórnarskrárinnar skal forseti Íslands kjörinn beinum leynilegum kosningum af þeim er kosningarétt hafa til Alþingis. Forsetaefni skal hafa meðmæli minnst 1500 kosningabærra manna og mest 3000. Síðastnefnt skilyrði um fjölda meðmælenda með forsetaefni, sem tekið var upp í stjórnarskrána að tillögu sameinaðra stjórnarskrárnefnda beggja deilda Alþingis samhliða því að lagt var til að forseti skyldi þjóðkjörinn en ekki þingkjörinn, var skýrt svo í áliti nefndanna: „Rétt þykir að gera nokkuð strangar kröfur um meðmælendafjölda við forsetakjör, og er hér gert ráð fyrir minnst 1500 meðmælendum, en mest 3000, eftir því sem nánar verður tiltekið í kosningalögum.“ Í 2. mgr. 5. gr. stjórnarskrárinnar segir að ákveða skuli með lögum um framboð og kjör forseta að öðru leyti en því, sem fyrir er mælt í 1. mgr. greinarinnar, þar á meðal megi ákveða að tiltekin tala meðmælenda skuli vera úr landsfjórðungi hverjum í hlutfalli við kjósendatölu þar. Í 4. gr. laga nr. 36/1945 er kveðið á um að framboðum til forsetakjörs skuli skila í hendur innanríkisráðuneytinu ásamt samþykki forsetaefnis, nægilegri tölu meðmælenda og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir séu kosningabærir ekki síðar en 5 vikum fyrir kjördag og skuli ráðuneytið auglýsa með sama hætti og segi í 3. gr. laganna innan viku hverjir séu í kjöri til forsetaembættisins. Önnur ákvæði um framboð við forsetakjör er ekki að finna í lögunum, þar á meðal er ekki kveðið á um, hvorki af né á, hvort sami kjósandi megi mæla með fleiri en einum til framboðs til embættis forseta. Að öðru leyti en því, sem mælt er fyrir um í 1. og 2. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945, fer eftir 3. mgr. greinarinnar um kosningaathöfnina sjálfa við forsetakjör, sem og undirbúning hennar, atkvæðagreiðslu utan kjörstaða og á kjörstað samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis eftir því sem við á. Þegar síðastgreint ákvæði var upphaflega sett voru í gildi lög nr. 80/1942 um kosningar til Alþingis. Í VI. kafla þeirra laga var fjallað um framboð og var þar ekki, frekar en í lögum nr. 36/1945, kveðið á um hvort sami kjósandi mætti mæla með fleiri en einum manni eða lista til framboðs. Í VIII. kafla laga nr. 80/1942 voru ákvæði um kosningaundirbúning, í X. kafla um kjörstaði, atkvæðakassa og fleira, í XI. kafla um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar og í XII. kafla um atkvæðagreiðslu á kjörfundi. Að þessu virtu getur sú tilvísun 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 að við undirbúning kosningaathafnar við forsetakjör skuli fara samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis ekki tekið til framboðs til embættis forseta. Í 2. mgr. 33. gr. laga nr. 24/2000 segir að sami kjósandi megi ekki mæla með fleiri en einum lista við sömu alþingiskosningar. Í samræmi við þá reglu er kveðið á um í 3. mgr. 34. gr. laganna að berist yfirkjörstjórn meðmælendalistar þar sem sami kjósandi mælir með fleiri en einu framboði verði kjósandinn ekki talinn meðmælandi neins þeirra. Í greinargerð með frumvarpi til laganna var tekið fram að ákvæðið í 2. mgr. 33. gr. væri nýmæli. Þar væri kveðið á um að sama kjósanda væri einvörðungu heimilt að mæla með einum framboðslista við hverjar alþingiskosningar. Vafi hafi þótt leika á hvort þetta væri heimilt og væri lagt til að tekið skyldi af skarið um að það skyldi óheimilt. Einnig kom fram að ákvæði 3. mgr. 34. gr. væri nýmæli og tæki til þess að sami kjósandi mælti með fleiri en einu framboði sem ekki væri heimilt samkvæmt 2. mgr. 33. gr. Með setningu síðargreinda ákvæðisins hefur löggjafinn tekið af skarið um að sami kjósandi megi ekki mæla með fleiri en einum lista við alþingiskosningar. Verður að líta svo á að hér sé um að ræða meginreglu í íslenskum rétti, sem taki til meðmæla við framboð í almennum kosningum. Eins og áður greinir er ekki kveðið á um það í lögum nr. 36/1945 að sami kjósandi megi ekki mæla með fleiri en einum til framboðs til embættis forseta Íslands. Þótt ekki sé þar vísað til 2. mgr. 33. gr. laga nr. 24/2000 samræmist sú regla, sem þar er að finna, fyrrgreindu markmiði að baki skilyrðinu um fjölda meðmælenda með forsetaefni í 1. mgr. 5. gr. stjórnarskrárinnar þar https://www.haestirettur.is/akvardanir/2016/ 16/17

Select target paragraph3