7/17/2020
Ákvarðanir 2016
brot á miðjum kjörseðlunum þegar þeir voru afhentir kjósendum í kjördeildum. Kjósandi hafi getað sett seðil sinn aftur í sama
brot eftir að hann greiddi atkvæði, með óprentaðri hlið seðilsins út á við, og sett hann í kjörkassa. Í kjörfundarstofum hafi legið
frammi leiðbeiningar handa kjósendum, sem ráðuneytið hafi látið gera vegna forsetakjörsins, og hafi meðal annars verið tekið
þar fram með áberandi hætti að kjósandi ætti að nota blýant í kjörklefa til að setja kross á kjörseðil sinn framan við nafn þess
frambjóðanda sem hann vildi greiða atkvæði. Pappír, sem kjörseðlarnir hafi verið prentaðir á, hafi verið þyngri en áskilið sé í 2.
mgr. 50. gr. laga nr. 24/2000 og telji ráðuneytið það hafa aukið á kosningaleynd. Loks lýsir ráðuneytið því áliti að skrif á
kosningavef þess hafi efnislega verið í samræmi við lög nr. 36/1945 og ákvæði laga nr. 24/2000, sem fyrrnefndu lögin vísi til.
II
Samkvæmt 4. gr. laga nr. 36/1945 skal skila framboðum til forsetakjörs í hendur innanríkisráðuneytinu ásamt samþykki
forsetaefnis, nægilegri tölu meðmælenda og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir séu kosningarbærir ekki síðar en fimm
vikum fyrir kjördag. Skal ráðuneytið innan viku auglýsa í útvarpi og Lögbirtingablaði hverjir séu í kjöri til forsetaembættisins og
afgreiða svo til Hæstaréttar öll framangreind skjöl. Því til samræmis sendi ráðuneytið Hæstarétti skjöl þessi 25. maí 2016.
Meðal þeirra var auglýsing samkvæmt 4. gr. laga nr. 36/1945, dagsett 25. maí 2016, en í henni kom fram að í „kjöri til
forsetaembættisins“ væru Andri Snær Magnason, Ástþór Magnússon, Davíð Oddsson, Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Guðni Th.
Jóhannesson, Guðrún Margrét Pálsdóttir, Halla Tómasdóttir, Hildur Þórðardóttir og Sturla Jónsson. Við nafn hvers þeirra var
tiltekið heimilisfang, en þó þannig að varðandi Ástþór Magnússon sagði: „Bretlandi, dvalarstaður Vogaseli 1, Reykjavík“. Efst á
prentuðum kjörseðlum, sem gerðir voru til afnota við atkvæðagreiðslu á kjörfundi, stóð „FORSETAKJÖR 2016“ og þar neðan við
var breitt lárétt strik. Undir því striki voru síðan prentuð í lóðréttri röð nöfn forsetaefnanna eftir stafrófi og voru lárétt strik,
mun fíngerðari, á milli nafna þeirra og jafnframt undir nafni þess forsetaefnis sem neðst stóð á seðlunum. Nöfn
forsetaefnanna voru tilgreind á sama hátt og í auglýsingu innanríkisráðuneytisins 25. maí 2016. Frekari texti var ekki á
kjörseðlunum, en þeir voru brotnir saman um miðju þannig að óprentaða hliðin sneri út.
Um það, sem koma þarf fram á kjörseðlum til afnota við atkvæðagreiðslu á kjörfundi við forsetakjör, segir það eitt í síðari
málslið 5. gr. laga nr. 36/1945 að þar skuli prenta skýru letri nöfn forsetaefna í stafrófsröð. Ekki verður leitt af þessu
lagaákvæði, 1. mgr. 5. gr. stjórnarskrárinnar eða fyrirmælum laga nr. 24/2000, sem átt geta við um forsetakjör samkvæmt 5.
gr. og 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945, sbr. 2. gr. laga nr. 6/1984, að nokkuð annað en þetta hafi þurft að koma fram í texta á
kjörseðlunum. Hvorki þurfti því að tiltaka berum orðum að um væri að ræða kjör forseta Íslands 2016 né að nöfnin á
kjörseðlunum væru nöfn forsetaefna, enda var það sjálfgefið og mátti hverjum manni vera augljóst. Að lögum voru enn síður
efni til að vísa til stjórnarskrárinnar eða laga nr. 36/1945 í texta á kjörseðlunum eða taka þar upp leiðbeiningar um hvernig
kjósandi ætti að nýta kjörseðil til að greiða gilt atkvæði. Um það síðastnefnda er þess jafnframt að gæta að samkvæmt síðari
málslið 1. mgr. 77. gr. laga nr. 24/2000, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945, bar að festa kosningaleiðbeiningar upp á vegg í
kjörfundarstofum, en með athugasemdum innanríkisráðuneytisins til Hæstaréttar fylgdi sýnishorn af slíkum leiðbeiningum og
var efni þeirra í engu áfátt. Á kjörseðlunum voru ekki prentuð full nöfn þriggja forsetaefna, svo sem nöfn þeirra eru tilgreind í
þjóðskrá, þeirra Ástþórs Magnússonar Wium, Guðna Thorlacius Jóhannessonar og Sturlu Hólm Jónssonar. Um þetta er til þess
að líta að í 5. gr. laga nr. 36/1945 er ekki boðið að prenta skuli full nöfn forsetaefna á kjörseðla, en að virtri 1. mgr. 52. gr. laga
nr. 24/2000 hefði ekki verið ástæða til að gera slíkt eða tiltaka nánari upplýsingar um forsetaefni, svo sem stöðu, starfsheiti
eða heimili, nema nauðsynlegt hefði verið til auðkenningar. Sem fyrr segir kveðst innanríkisráðuneytið hafa farið að óskum
hvers forsetaefnis um ritun nafns þess á kjörseðlunum. Ekki verður horft fram hjá því að í aðdraganda forsetakjörsins fór fram
viðamikil kynning á forsetaefnum, þar á meðal í fjölmiðlum, og mátti kjósendum þannig vera ljóst hverjir þeir níu menn væru
sem þar voru í kjöri. Verður ekki séð að haldbær ástæða sé til að ætla að kjósendur, sem greiddu Ástþóri Magnússyni, Guðna
Th. Jóhannessyni eða Sturlu Jónssyni atkvæði, hafi getað gert það í villu um að þetta væru aðrir menn sem beri sömu eða lík
nöfn eftir þjóðskrá. Sem fyrr segir voru nöfn forsetaefna á kjörseðlunum aðgreind með láréttum strikum og var eyða vinstra
megin við þau, þar sem koma mátti fyrir bókstafnum „x“ til að greiða einhverju þeirra atkvæði. Hvorki var skylt eftir lögum nr.
36/1945 né af öðrum sökum þörf á að afmarka frekar rými til þess með prentuðum ferningum framan við nöfn forsetaefna. Þá
voru kjörseðlar gerðir þannig úr garði að kjósendur fengu þá í hendur samanbrotna um miðju og sneri sem áður greinir
óprentaða hliðin út, svo sem boðið er í 1. mgr. 53. gr. laga nr. 24/2000, sem hér á við samkvæmt 5. gr. og 3. mgr. 6. gr. laga nr.
36/1945. Ekki eru efni til að draga í efa að kjörseðlarnir hafi að öðru leyti verið gerðir í samræmi við fyrirmæli fyrri málsliðar 2.
mgr. 50. gr. laga nr. 24/2000. Fréttir eða leiðbeiningar, sem innanríkisráðuneytið kann að hafa birt á kosningavef sínum, voru
ekki settar þar til að þjóna lögbundnum tilgangi og getur efni þeirra þegar af þessari ástæðu engu skipt um gildi
forsetakjörsins.
Að virtu öllu framangreindu verður ekki orðið við kröfu kæranda um ógildingu forsetakjörs 25. júní 2016.
Miðvikudaginn 20. júlí 2016
https://www.haestirettur.is/akvardanir/2016/
Endurrit
úr
gerðabók
Hæstaréttar við kjör forseta Íslands
---ooo000ooo--13/17