7/17/2020 Ákvarðanir 2016 36/1945, en þann rétt getur kjósandi meðal annars nýtt hafi hann greitt atkvæði utan kjörfundar manni, sem síðan reynist ekki vera í framboði við forsetakjör, eða vilji hann fremur greiða öðrum frambjóðanda atkvæði sitt. Að þessu öllu virtu eru ekki efni til að verða við kröfu kæranda um ógildingu forsetakjörs 25. júní 2016. Föstudaginn 8. júlí 2016 Endurrit úr gerðabók Hæstaréttar við kjör forseta Íslands ---ooo000ooo--- Ár 2016, föstudaginn 8. júlí, er þing Hæstaréttar sett í dómhúsi réttarins af hæstaréttardómurunum Markúsi Sigurbjörnssyni, Benedikt Bogasyni, Eiríki Tómassyni, Karli Axelssyni, Viðari Má Matthíassyni og Þorgeiri Örlygssyni og Ingveldi Einarsdóttur settum hæstaréttardómara. Hæstarétti barst 4. júlí 2016 erindi frá Halldóri Sigurþórssyni og Jóhannesi Þór Hilmarssyni, sem hér á eftir verða sameiginlega nefndir kærendur. Í erindinu kæra þeir forsetakjör, sem fór fram 25. júní sama ár, með vísan til 2. mgr. 14. gr. laga nr. 36/1945 um framboð og kjör forseta Íslands og krefjast þess að það verði ógilt. Með því að kæra þessi lýtur að atriðum, sem eiga eftir ákvæðum fyrrnefndra laga undir innanríkisráðherra, gaf Hæstiréttur ráðuneyti hans kost á að koma á framfæri athugasemdum og bárust þær réttinum 6. júlí 2016. Að ákvörðun þessari standa sjö af dómurum Hæstaréttar, sbr. 4. mgr. 7. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla. I Samkvæmt auglýsingu forsætisráðherra 5. mars 2016 fór kjör forseta Íslands sem fyrr segir fram 25. júní sama ár. Í auglýsingunni var tekið mið af því að samkvæmt 4. gr. laga nr. 36/1945 beri þeim, sem hefur hug á að gefa kost á sér í forsetakjöri, að skila til innanríkisráðuneytisins ekki síðar en fimm vikum fyrir kjördag framboði ásamt tilteknum fjölda meðmælenda úr hverjum landsfjórðungi og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir séu kosningarbærir, sbr. 1. mgr. 3. gr. sömu laga. Framboðsfrestur í þessu forsetakjöri rann þannig út 20. maí 2016. Í samræmi við 4. gr. laganna birti innanríkisráðherra auglýsingu 25. sama mánaðar, þar sem fram kom að níu nafngreindir menn væru í framboði við forsetakjörið. Áður en þetta lá fyrir hafði atkvæðagreiðsla utan kjörfundar staðið yfir á fjórðu viku eða frá 30. apríl 2016. Í kæru er um röksemdir í fyrsta lagi vísað til þess að samkvæmt 6. gr. laga nr. 36/1945 eigi kjósandi, sem greiðir atkvæði utan kjörfundar við forsetakjör, að rita á kjörseðil nafn þess frambjóðanda, sem hann vill kjósa af þeim sem í kjöri eru. Öryggisog samvinnustofnun Evrópu hafi í skýrslu 29. júlí 2009 lýst því áliti að ekki ætti að hefja atkvæðagreiðslu utan kjörfundar fyrr en kjörstjórn hefði staðfest framlögð framboð auk þess sem endurskoða þyrfti lagaákvæði um slíkar atkvæðagreiðslur. Þrátt fyrir þessa skýrslu hafi „íslensk stjórnvöld ekki uppfært lögin“, heldur efnt til forsetakjörs þvert á athugasemdir í henni „og virt að vettugi góðar lýðræðishefðir.“ Í öðru lagi reisa kærendur kröfu sína á því að samkvæmt 6. gr. laga nr. 36/1945 greiði kjósandi atkvæði utan kjörfundar við forsetakjör með því að rita á kjörseðil fullt nafn frambjóðandans sem hann vill kjósa. Í lögunum sé hvergi að finna heimild til að nota stimpla með nöfnum frambjóðenda við forsetakjör og sé ekki um það rætt í ákvæðum laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis, sem vísað er til í 1. mgr. 14. gr. laga nr. 36/1945. Að auki sé í 47. gr. laga nr. 24/2000 tiltekið að meðal kjörgagna við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við alþingiskosningar séu stimplar með listabókstöfum, en ekki sé þar getið um stimpla með nöfnum frambjóðenda. Með þessu séu tekin af tvímæli um að regla þessi geti ekki átt við um forsetakjör, sbr. einnig 62. gr. sömu laga. Í þriðja lagi vísa kærendur til þess að „fjölmörg dæmi“ hafi verið um að stimplum með nöfnum frambjóðenda í forsetakjörinu hafi verið „raðað upp með sérstökum hætti í kjörklefa þannig að stimplar með nöfnum einstakra frambjóðenda voru staðsettir útí horni á meðan öðrum var stillt upp fyrir miðju.“ Sé þetta þekkt aðferð „við uppröðun á vörum í verslunum til að hafa áhrif á val neytenda“ og virðist sem vísvitandi hafi verið reynt með þessu að hafa áhrif á val kjósenda. Í kæru er þessu til stuðnings að finna ljósmynd, sem virðist hafa verið tekin í kjörklefa við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við forsetakosningarnar, en á henni má sjá hvernig stimplum hafi verið raðað upp á borði við það tækifæri. Kveðast kærendur telja augljóst að ólögmæt framkvæmd atkvæðagreiðslu utan kjörfundar hafi haft áhrif á niðurstöðu kosninganna og sé því óhjákvæmilegt að ógilda forsetakjörið. Í athugasemdum, sem innanríkisráðuneytið beindi til Hæstaréttar í tilefni af framangreindri kæru, segir að lög nr. 36/1945 séu fáorð um framkvæmd forsetakosninga og sé þar um flest sem hana varðar vísað til laga nr. 24/2000. Þannig komi meðal annars fram í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 að um kosningaathöfn við forsetakjör, undirbúning hennar, atkvæðagreiðslu utan kjörstaða og á kjörstað fari í öðrum atriðum en þeim, sem beinlínis er mælt fyrir um í lögunum, eftir lögum um kosningar til Alþingis. Um fyrstnefndar röksemdir kærenda hér að framan vísar ráðuneytið til þess að upphaf atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við forsetakjör hafi í samræmi við framangreind lagaákvæði alla tíð farið eftir reglum laga um kosningar til Alþingis sem hafi verið í gildi á hverjum tíma. Allt til ársins 1987 hafi atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við alþingiskosningar ekki getað byrjað fyrr en framboðsfrestur hafi verið liðinn, en á því hafi orðið breyting með lögum nr. 80/1987 um kosningar til Alþingis. https://www.haestirettur.is/akvardanir/2016/ 7/17

Select target paragraph3