7/17/2020 Föstudaginn 8. júlí 2016 Ákvarðanir 2016 Endurrit úr gerðabók Hæstaréttar við kjör forseta Íslands ---ooo000ooo--- Ár 2016, föstudaginn 8. júlí, er þing Hæstaréttar sett í dómhúsi réttarins af hæstaréttardómurunum Markúsi Sigurbjörnssyni, Benedikt Bogasyni, Eiríki Tómassyni, Karli Axelssyni, Viðari Má Matthíassyni og Þorgeiri Örlygssyni og Ingveldi Einarsdóttur settum hæstaréttardómara. Hæstarétti barst 4. júlí 2016 erindi frá Hauki Haraldssyni og Kristni Jónssyni, þar sem þeir kæra forsetakjör, sem fór fram 25. júní sama ár, með vísan til 2. mgr. 14. gr. laga nr. 36/1945 um framboð og kjör forseta Íslands. Þeir krefjast þess að forsetakjörið verði ógilt. Með því að kæra þessi lýtur að atriðum, sem eiga eftir ákvæðum fyrrnefndra laga undir innanríkisráðherra, gaf Hæstiréttur ráðuneyti hans kost á að koma á framfæri athugasemdum og bárust þær réttinum 6. júlí 2016. Að ákvörðun þessari standa sjö af dómurum Hæstaréttar, sbr. 4. mgr. 7. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla. I Samkvæmt auglýsingu forsætisráðherra 5. mars 2016 fór kjör forseta Íslands sem fyrr segir fram 25. júní sama ár. Í auglýsingunni var tekið mið af því að samkvæmt 4. gr. laga nr. 36/1945 beri þeim, sem hefur hug á að gefa kost á sér í forsetakjöri, að skila til innanríkisráðuneytisins ekki síðar en fimm vikum fyrir kjördag framboði ásamt tilteknum fjölda meðmælenda úr hverjum landsfjórðungi og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir séu kosningarbærir, sbr. 1. mgr. 3. gr. sömu laga. Framboðsfrestur í þessu forsetakjöri rann þannig út 20. maí 2016. Í samræmi við 4. gr. laganna birti innanríkisráðherra auglýsingu 25. sama mánaðar, þar sem fram kom að níu nafngreindir menn væru í framboði við forsetakjörið. Áður en þetta lá fyrir hafði atkvæðagreiðsla utan kjörfundar staðið yfir á fjórðu viku. Í kæru er vísað til þess að samkvæmt 6. gr. laga nr. 36/1945 eigi kjósandi, sem greiðir atkvæði utan kjörfundar við forsetakjör, að rita á kjörseðil nafn þess frambjóðanda, sem hann vill kjósa af þeim sem í kjöri eru. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hafi byrjað 30. apríl 2016 þó svo að ekki hafi þurft að skila framboðum til forsetakjörs fyrr en fimm vikum fyrir kjördag, sbr. 4. gr. sömu laga. Ekki hafi verið tilkynnt hverjir væru í kjöri fyrr en 25. maí 2016. Sé því ljóst að „þúsundir kjósenda“ hafi greitt atkvæði utan kjörfundar án þess að vita fyrir víst hverjir væru í kjöri. Þótt unnt sé að kjósa að nýju utan kjörfundar þegar þetta sé komið fram sé fullvíst að aðstæður margra geri það ófært eða illfært. Sé augljóst að þessi ólögmæta framkvæmd kosninganna hafi haft áhrif á niðurstöðu þeirra, þótt ekki verði fullyrt hvort úrslit hefðu að öðrum kosti orðið önnur. Sé þetta slíkur annmarki á framkvæmd atkvæðagreiðslu utan kjörfundar að óhjákvæmilegt sé að ógilda forsetakjörið. Í athugasemdum, sem innanríkisráðuneytið beindi til Hæstaréttar í tilefni af framangreindri kæru, segir að lög nr. 36/1945 séu fáorð um framkvæmd forsetakosninga og sé þar um flest sem hana varðar vísað til laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis. Þannig komi meðal annars fram í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 að um kosningaathöfn við forsetakjör, undirbúning hennar, atkvæðagreiðslu utan kjörstaða og á kjörstað fari í öðrum atriðum en þeim, sem beinlínis er mælt fyrir um í lögunum, eftir lögum um kosningar til Alþingis. Hafi því upphaf atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við forsetakjör alla tíð farið eftir reglum laga um kosningar til Alþingis sem hafi verið í gildi á hverjum tíma. Allt til ársins 1987 hafi atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við alþingiskosningar ekki getað byrjað fyrr en framboðsfrestur hafi verið liðinn, en á því hafi orðið breyting með lögum nr. 80/1987 um kosningar til Alþingis. Regla um þetta, sem þá var tekin upp, komi nú fram í 57. gr. laga nr. 24/2000, þar sem mælt sé svo fyrir að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar megi hefjast átta vikum fyrir kjördag. Samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 gildi þessi regla um forsetakjör, en hafa megi í huga að þótt hefja megi atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við kosningar til Alþingis með þessum fyrirvara renni framboðsfrestur við þær ekki út fyrr en 15 dögum fyrir kjördag. Þá verði jafnframt að gæta að því að samkvæmt 88. gr. og 2. mgr. 91. gr. laga nr. 24/2000, sem gildi við forsetakjör eftir 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945, geti kjósandi, sem greitt hefur atkvæði utan kjörfundar, gert það aftur hvort heldur á sama hátt eða á kjörfundi. Í athugasemdum ráðuneytisins er þess einnig getið að samkvæmt upplýsingum, sem það hafi aflað, hafi innan við 1.500 kjósendur greitt atkvæði utan kjörfundar við forsetakjörið á tímabilinu frá 30. apríl til 25. maí 2016. II Í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945, eins og greininni var breytt með 2. gr. laga nr. 6/1984, kemur fram að kjósandi, sem greiðir atkvæði utan kjörfundar við forsetakjör, riti á kjörseðil nafn þess frambjóðanda, sem hann vill kjósa af þeim sem í kjöri eru. Atkvæði skuli ekki meta ógilt þótt sleppt sé kenninafni eða ættarnafn eitt sett ef greinilegt er eftir sem áður við hvern sé átt. Í lögunum er ekki mælt frekar fyrir um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við forsetakjör að öðru leyti en því að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. þeirra fer um þá atkvæðagreiðslu samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis eftir því sem við á. Síðastnefnd tilvísun í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 nær til ákvæða XII. kafla laga nr. 24/2000. Til þess kafla heyrir 57. gr. laganna, þar sem mælt er fyrir um rétt kjósanda til að greiða atkvæði utan kjörfundar. Þar segir meðal annars að hefja skuli https://www.haestirettur.is/akvardanir/2016/ 9/17

Select target paragraph3