7/17/2020 Ákvarðanir 2016 þessu forsetakjöri rann út á miðnætti aðfaranótt 21. maí 2016. Kærandi kveðst hafa stefnt að framboði til forsetakjörs, en af ástæðum, sem megi einkum rekja til villandi upplýsinga frá yfirkjörstjórnum, hafi innanríkisráðuneytið ekki metið framboð hans gilt. Hafi ástæða þess verið sú að með framboðinu hafi aðeins verið skilað vottorðum yfirkjörstjórna um kosningarbærni 820 meðmælenda úr Sunnlendingafjórðungi, þótt tala meðmælenda úr öðrum landfjórðungum hafi verið nægileg. Í kærunni greinir kærandi frá samskiptum sínum við nafngreinda menn, sem eigi sæti í yfirkjörstjórnum Suðurkjördæmis og Suðvesturkjördæmis. Segir kærandi manninn í fyrrnefndu yfirkjörstjórninni hafa sagt sér að skila mætti listum með meðmælendum úr Sunnlendingafjórðungi til þeirrar kjörstjórnar ef meiri hluti þeirra væri úr Suðurkjördæmi, en þegar skammt hafi verið til loka framboðsfrests hafi sami maður tilkynnt sér að kærandi þyrfti sjálfur að skila listum með meðmælendum úr Suðvesturkjördæmi og báðum kjördæmum Reykjavíkur til viðkomandi yfirkjörstjórna. Að því er varðar samskipti við mann í yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis segist kærandi hafa veitt tilteknum manni umboð til að koma fram fyrir sína hönd í sambandi við forsetakjörið og hafi umboðsmaðurinn afhent yfirkjörstjórnum í Suðvesturkjördæmi og Reykjavík meðmælendalista. Yfirkjörstjórnin í Suðvesturkjördæmi hafi 19. maí 2016 neitað að afhenda umboðsmanninum vottorð um kosningarbærni meðmælenda og beint því til kæranda að sækja það sjálfur. Erfitt hafi reynst að koma því við og hafi þá kjörstjórnarmaðurinn sagt kæranda að hann „skyldi sækja um frest“ og fengi hann vottorðið 21. sama mánaðar. Kærandi hafi að kvöldi 20. maí 2016 skilað framboði sínu til innanríkisráðuneytisins og hafi fylgt því vottorð yfirkjörstjórna í öllum kjördæmum að frátöldu Suðvesturkjördæmi. Hann hafi þá óskað eftir fresti til 23. sama mánaðar „til að skila gögnum sem upp á vantar, þ.e. meðmælendum úr Sunnlendingafjórðungi og vottorði yfirkjörstjórnar“, en því hafi verið hafnað. Kærandi telji sig á framangreindan hátt hafa fengið rangar og villandi upplýsingar frá umræddum yfirkjörstjórnum og hafi þetta valdið því að honum hafi ekki reynst unnt að skila framboði. Því krefjist hann þess að fyrirhugað forsetakjör „verði dæmt ólögmætt“, en um heimild til að bera upp kæruna vísar hann til 2. mgr. 14. gr. og 2. mgr. 11. gr. laga nr. 36/1945. Í athugasemdum, sem innanríkisráðuneytið beindi til Hæstaréttar í tilefni af framangreindri kæru, er vísað til þess að í samræmi við 5. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 36/1945 hafi verið tiltekið í auglýsingu forsætisráðherra 5. mars 2016 að frambjóðendur til forsetakjörs þyrftu að leggja fyrir meðmæli frá minnst 1.215 kosningarbærum mönnum úr Sunnlendingafjórðungi, 62 úr Vestfirðingafjórðungi, 163 úr Norðlendingafjórðungi og 60 úr Austfirðingafjórðungi. Kærandi hafi náð þessum fjölda meðmælenda úr þremur síðastnefndum landsfjórðungum, en á hinn bóginn hafi hann einungis skilað vottorðum yfirkjörstjórna um kosningarbærni 820 meðmælenda úr Sunnlendingafjórðungi. Í 4. gr. laga nr. 36/1945 sé enga heimild að finna handa innanríkisráðuneytinu til að veita frambjóðenda frest fram yfir lok framboðsfrests til að afla fleiri meðmælenda og vottorða yfirkjörstjórna um kosningarbærni þeirra. Hafi framboð kæranda því ekki verið gilt. II Samkvæmt 2. gr. laga nr. 36/1945 eru undirkjörstjórnir og yfirkjörstjórnir við forsetakjör þær sömu og við alþingiskosningar, en auk þeirra skal Hæstiréttur hafa með höndum þau störf, sem mælt er fyrir um í lögunum. Þau störf felast nánar tiltekið í fyrsta lagi í því að Hæstiréttur tekur við gögnum frá innanríkisráðuneytinu um framboð við forsetakjör og auglýsingu þess um hverjir séu í kjöri, sbr. 4. gr. laganna. Í öðru lagi úrskurðar Hæstiréttur samkvæmt 2. mgr. 7. gr. laganna um hvort fresta þurfi forsetakjöri vegna andláts forsetaefnis og undirbúa kjör að nýju. Í þriðja lagi ber Hæstarétti að halda sérstaka gerðabók um málefni vegna forsetakjörs, sbr. 8. gr. laganna. Í fjórða lagi tekur Hæstiréttur samkvæmt 11. gr. laganna að afstöðnum forsetakosningum við eftirriti úr gerðabókum yfirkjörstjórna og ágreiningskjörseðlum og boðar síðan forsetaefni eða umboðsmenn þeirra til fundar, þar sem úrskurða skal um gildi ágreiningsseðla, lýsa úrslitum kosninga og gefa út kjörbréf handa forsetaefni, sem flest atkvæði hefur hlotið, en rísi ágreiningur um kjörgengi forsetaefnis sker Hæstiréttur úr. Í fimmta lagi gefur Hæstiréttur samkvæmt 12. gr. laganna út kjörbréf þegar að liðnum framboðsfresti handa forsetaefni, sem reynist vera eitt í kjöri. Í sjötta lagi ber réttinum samkvæmt 13. gr. laganna að senda eftirrit af kjörbréfi til forseta Alþingis og þess ráðherra, sem fer með málefni forseta Íslands. Loks tekur Hæstiréttur samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laganna við kærum um „ólögmæti forsetakjörs“, öðrum en refsikærum, og leysir úr þeim, en þær verða að berast í síðasta lagi fimm dögum fyrir fund samkvæmt 11. gr. laganna. Í þeim ákvæðum laga nr. 36/1945, sem að framan eru rakin, er hvergi að finna heimild til að kæra til Hæstaréttar tilteknar ákvarðanir eða gerðir ráðherra, kjörstjórna eða annarra stjórnvalda um undirbúning eða framkvæmd forsetakjörs. Almenna heimildin, sem felst í 2. mgr. 14. gr. laganna til að beina til réttarins kærum um ólögmæti forsetakjörs, leiðir á hinn bóginn til þess að leita megi eftir ógildingu forsetakjörs í heild, þar á meðal vegna afmarkaðra annmarka á undirbúningi þess eða framkvæmd, en Hæstiréttur getur ekki á þeim grunni ógilt tilteknar ákvarðanir um slík efni eða breytt þeim. Kjör forseta Íslands á að fara fram 25. júní 2016. Eðli máls samkvæmt getur Hæstiréttur ekki fjallað um gildi forsetakjörs sem ekki hefur verið lokið. Þá verður kæra í þessu tilviki heldur ekki studd við 2. mgr. 11. gr. laga nr. 36/1945, sem kærandi hefur einnig vísað til, enda snertir kæruefnið á engan hátt álitaefni um kjörgengi forsetaefnis samkvæmt 4. gr. stjórnarskrárinnar. Stendur því engin heimild í lögum nr. 36/1945 til að beina erindi kærandans til Hæstaréttar og er því af þessum sökum vísað frá réttinum. Föstudaginn 8. júlí 2016 https://www.haestirettur.is/akvardanir/2016/ 4/17

Select target paragraph3