7/17/2020 Ákvarðanir 2016 Endurrit úr gerðabók Hæstaréttar við kjör forseta Íslands ---ooo000ooo--Ár 2016, föstudaginn 8. júlí, er þing Hæstaréttar sett í dómhúsi réttarins af hæstaréttardómurunum Markúsi Sigurbjörnssyni, Benedikt Bogasyni, Eiríki Tómassyni, Karli Axelssyni, Viðari Má Matthíassyni og Þorgeiri Örlygssyni og Ingveldi Einarsdóttur settum hæstaréttardómara. Hæstarétti bárust 24. júní 2016 kærur vegna kjörs forseta Íslands 25. sama mánaðar frá Arngrími Pálmasyni og Páli Siggeirssyni, sem hér verða eftir því sem við á nefndir sameiginlega kærendur. Þá barst réttinum 28. júní 2016 kæra, sem Arngrímur Pálmason stóð einn að. Meginmál kæranna frá 24. júní 2016 er samhljóða og er kæran frá 28. sama mánaðar viðauki við þær. Verður því tekin ákvörðun um allar kærurnar þrjár í einu lagi. Að ákvörðun þessari standa sjö af dómurum Hæstaréttar, sbr. 4. mgr. 7. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla. I Áðurnefndar kærur eru allar handritaðar. Eftir því sem best verður séð segir eftirfarandi í kærunum frá 24. júní 2016: „Undirritaðir kærum alla framkvæmd og framsetningu landskjörstjórnar og svæðiskjörstjórna á framkvæmd forsetakosninga lýðveldisins Íslands sem fram eiga að fara laugardaginn 25. júní 2016. Landskjörstjórn er einkaframkvæmd án valdheimildar í lögum til að stýra kosningum. Einstaklingarnir, sem sitja í landskjörstjórn og öllum svæðiskjörstjórnum eru að taka sér vald sem þeir ekki hafa. Því ber að stöðva framkvæmd kosninga þann 25. júní 2016 sem öll telst lögleysa.“ Í kærunni frá 28. júní 2016 virðist segja eftirfarandi: „Undirritaður kærði og kæri alla framkvæmd og framsetningu á forsetakosningum lýðveldisins Íslands ... sem fram fóru laugardaginn 25. júní 2016. Krafist er í þessari viðbótar kæru að hver og einn einstaklingur í landskjörstjórn leggi fram persónu leyfi sitt til dómsákvörðunar í lögsögu Reykjavíkur ... Leyfi í lögsögu Rvk er skilyrði til þess að stýra kosningum til forseta lýðveldisins. Sjá t.d. Norðurlandasamning um sjálfstæði sveitafélaga frá 1930 og fl. alþjóðasamninga um sjálfstjórn sveitafélaga.“ II Líta verður svo á að í framangreindum kærum felist krafa um að forsetakjör 25. júní 2016 verði fellt úr gildi, sbr. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 36/1945 um framboð og kjör forseta Íslands. Þá verður ekki annað séð en að ástæður, sem færðar eru fyrir kærunum, snúi að valdheimildum kjörstjórna við framkvæmd forsetakjörsins. Um kjörstjórnir við forsetakjör eru fyrirmæli í 2. gr. laga nr. 36/1945. Þar kemur fram að undirkjörstjórnir og yfirkjörstjórnir séu þær sömu og við alþingiskosningar, en auk þessara kjörstjórna hafi Hæstiréttur með höndum þau störf, sem tiltekin séu í lögunum. Landskjörstjórn, sem gegnir störfum við alþingiskosningar samkvæmt lögum nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis og kjörin er eftir 12. gr. þeirra laga, kemur hvergi við sögu í forsetakjöri og geta atriði varðandi hana því engu skipt um lögmæti þess. Yfirkjörstjórnir, sem starfa á hinn bóginn við forsetakjör samkvæmt áðurnefndri 2. gr. laga nr. 36/1945, eru kosnar af Alþingi samkvæmt 13. gr. laga nr. 24/2000, en undirkjörstjórnir og aðrar kjörstjórnir eru kjörnar af sveitarstjórnum samkvæmt 15. gr. síðarnefndu laganna. Ekkert liggur fyrir um að annmarkar hafi verið á kosningu þessara kjörstjórna eftir fyrirmælum laga nr. 24/2000 eða að brestir hafi verið á hæfi þeirra, sem þar eiga sæti, til að gegna lögbundnum störfum sínum við forsetakjör. Að þessu virtu eru ekki efni til að ógilda forsetakjör 25. júní 2016 vegna atriða sem kærendur hafa fært fram. Föstudaginn 8. júlí 2016 Endurrit úr gerðabók Hæstaréttar við kjör forseta Íslands ---ooo000ooo--- Ár 2016, föstudaginn 8. júlí, er þing Hæstaréttar sett í dómhúsi réttarins af hæstaréttardómurunum Markúsi Sigurbjörnssyni, Benedikt Bogasyni, Eiríki Tómassyni, Karli Axelssyni, Viðari Má Matthíassyni og Þorgeiri Örlygssyni og Ingveldi Einarsdóttur settum hæstaréttardómara. Hæstarétti barst 27. júní 2016 kæra „vegna ólögmæti utankjörstaðakosninga“ við kjör forseta Íslands 25. sama mánaðar frá Birni Vernharðssyni fyrir hönd „framboðs Sturlu Jónssonar“. Í kærunni var þess krafist að „kosningarnar verði dæmdar ólögmætar eða að kosningum verði frestað og undirbúningur að kosningum fari að lögum um framboð og kjör forseta Íslands https://www.haestirettur.is/akvardanir/2016/ 5/17

Select target paragraph3