7/17/2020 Ákvarðanir 2016 Regla um þetta, sem þá var tekin upp, komi nú fram í 57. gr. laga nr. 24/2000, þar sem mælt sé svo fyrir að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar megi hefjast átta vikum fyrir kjördag. Samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 gildi þessi regla um forsetakjör, en hafa megi í huga að þótt hefja megi atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við kosningar til Alþingis með þessum fyrirvara renni framboðsfrestur við þær ekki út fyrr en 15 dögum fyrir kjördag. Þá verði jafnframt að gæta að því að samkvæmt 88. gr. og 2. mgr. 91. gr. laga nr. 24/2000, sem gildi við forsetakjör eftir 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945, geti kjósandi, sem greitt hefur atkvæði utan kjörfundar, gert það aftur hvort heldur á sama hátt eða á kjörfundi. Í athugasemdum ráðuneytisins er þess einnig getið að samkvæmt upplýsingum, sem það hafi aflað, hafi innan við 1.500 kjósendur greitt atkvæði utan kjörfundar við forsetakjörið á tímabilinu frá 30. apríl til 25. maí 2016. Um aðrar röksemdir kærenda, sem áður var getið, vísar ráðuneytið til þess að ákvæðum 6. gr. laga nr. 36/1945 hafi verið breytt með lögum nr. 6/1984 meðal annars til þess að hægar yrði um vik að beita lögum um kosningar til Alþingis við forsetakjör. Í 47. og 62. gr. laga nr. 24/2000 sé í samræmi við ákvæði fyrri laga um alþingiskosningar mælt fyrir um notkun stimpla við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar og hafi það verið gert um árabil. Hafi þetta reynst sjóndöprum og hreyfihömluðum kjósendum þarfaþing og í mörgum tilvikum orðið til þess að þeir hafi ekki þurft á aðstoð að halda við atkvæðagreiðslu, en einnig hafi komið fram að notkun stimpla hafi dregið úr fjölda ógildra atkvæða. Stimplar, sem notaðir hafi verið við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar í forsetakjörinu 25. júní 2016, hafi verið með fullum nöfnum frambjóðenda og hafi við framkvæmd hennar verið fylgt þeirri almennu reglu að raða stimplum upp í kjörklefum í stafrófsröð. II Í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945, eins og greininni var breytt með 2. gr. laga nr. 6/1984, kemur fram að kjósandi, sem greiðir atkvæði utan kjörfundar við forsetakjör, riti á kjörseðil nafn þess frambjóðanda, sem hann vill kjósa af þeim sem í kjöri eru. Atkvæði skuli ekki meta ógilt þótt sleppt sé kenninafni eða ættarnafn eitt sett ef greinilegt er eftir sem áður við hvern sé átt. Í lögunum er ekki mælt frekar fyrir um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við forsetakjör að öðru leyti en því að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. þeirra fer um þá atkvæðagreiðslu samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis eftir því sem við á. Síðastnefnd tilvísun í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 nær til ákvæða XII. kafla laga nr. 24/2000. Til þess kafla heyrir 57. gr. laganna, þar sem mælt er fyrir um rétt kjósanda til að greiða atkvæði utan kjörfundar. Þar segir meðal annars að hefja skuli kosningu utan kjörfundar svo fljótt sem kostur er eftir að kjördagur hefur verið auglýstur, en þó ekki fyrr en átta vikum fyrir kjördag. Af 1. mgr. 30. gr. og 57. gr. laga nr. 24/2000 leiðir að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við kosningar til Alþingis getur þannig hafist átta vikum fyrir kjördag eða 41 degi áður en fimmtán daga framboðsfresti við þær lýkur. Samkvæmt því hefur löggjafinn ákveðið að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar geti byrjað við kosningar til Alþingis þótt ekki liggi endanlega fyrir hverjir bjóði sig þar fram. Vegna fyrrgreindrar tilvísunar 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 gildir sama regla við forsetakjör án tillits til þess að það valdi því að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar geti hafist þremur vikum áður en fimm vikna framboðsfresti lýkur og í það minnsta fjórum vikum áður en auglýst er eftir 4. gr. sömu laga hverjir séu í kjöri. Þessu getur orðalag fyrri málsliðar 1. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 ekki breytt, en til þess verður og að líta að ef ekki væri unnt að beita ákvæði 57. gr. laga nr. 24/2000 við forsetakjör myndi engin lögfest regla gilda um hvenær atkvæðagreiðsla utan kjörfundar gæti hafist þar. Þá verður einnig að taka tillit til þess að rúmur tími til slíkrar atkvæðagreiðslu er settur kjósendum til hagsbóta samhliða því að þeir geti allt fram á kjördag kosið á nýjan leik eftir áðurnefndum ákvæðum 88. gr. og 2. mgr. 91. gr. laga nr. 24/2000, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945, en þann rétt getur kjósandi meðal annars nýtt hafi hann greitt atkvæði utan kjörfundar manni, sem síðan reynist ekki vera í framboði við forsetakjör, eða vilji hann fremur greiða öðrum frambjóðanda atkvæði sitt. Þegar af þessum ástæðum eru ekki efni til að verða við kröfu kærenda á grundvelli röksemda þeirra varðandi upphaf atkvæðagreiðslu utan kjörfundar. Um aðrar röksemdir kærenda er þess að gæta að í 1. mgr. 14. gr. laga nr. 36/1945 er ekki tæmandi talning á þeim ákvæðum laga um kosningar til Alþingis, sem beitt verður við forsetakjör, svo sem berlega verður ráðið af 3. mgr. 6. gr. fyrrnefndu laganna. Tilvísunin í þessu síðastgreinda lagaákvæði nær sem áður segir til XII. kafla laga nr. 24/2000, en í 2. mgr. 62. gr. þeirra laga, sem er að finna í þeim kafla, kemur fram að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við kosningar til Alþingis fari þannig fram að kjósandi stimpli eða riti á atkvæðaseðil bókstaf þess lista sem hann vill kjósa. Eftir 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 verður þessari reglu eðli máls samkvæmt beitt að breyttu breytanda við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við forsetakjör á þann hátt að kjósendum standi þar til boða stimplar með nöfnum frambjóðenda í stað stimpla með listabókstöfum við alþingiskosningar. Styðst þetta jafnframt við þau efnisrök að hagræði, sem sjóndaprir eða hreyfihamlaðir kjósendur geta haft af notkun stimpla við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við kosningar til Alþingis, er ekki síður fyrir hendi í slíkri atkvæðagreiðslu við forsetakjör, því ella þyrfti að rita fullt nafn frambjóðanda á kjörseðil. Við forsetakjör dregur þetta að auki enn frekar úr hættu á ógildi atkvæðis og kemur einnig í veg fyrir að kjörseðill beri fjölda bókstafa með rithönd kjósanda þannig að tryggt er að leyndar sé gætt um hvernig hann hafi greitt atkvæði. Um uppröðun stimpla á borðum í kjörklefum gilda ekki lögfestar reglur, en ekki eru efni til að vefengja að við framkvæmd atkvæðagreiðslu utan kjörfundar í forsetakjörinu hafi almennt verið farin sú leið, sem greind er í athugasemdum innanríkisráðuneytisins og áður var getið, að raða stimplum með nöfnum frambjóðenda í stafrófsröð. Hafi í einhverjum tilvikum orðið misbrestur á því, sem ljósmynd í kæru getur ekki ein og sér nægt til að sýna fram á, fer fjarri að raunhæf hætta hafi verið á að handahófskennd uppröðun stimpla hafi nokkru getað ráðið um hvernig einstakir kjósendur kunni að hafa greitt atkvæði fremur en staðsetning eftir nöfnum frambjóðenda í stafrófsröð mundi gera. Að virtu öllu framangreindu verður ekki orðið við kröfu kærenda um ógildingu forsetakjörs 25. júní 2016. https://www.haestirettur.is/akvardanir/2016/ 8/17

Select target paragraph3