7/17/2020
Ákvarðanir 2011
landskjörstjórnar hafi haft eftirlit með endanlegri staðfestingu. Hafi komið upp vafamál hafi seðillinn verið sóttur í bunka og hann metinn
sérstaklega af landskjörstjórn. Sú vinna sem hér hafi verið lýst hafi hafist sunnudagsmorguninn 28. nóvember og lokið aðfaranótt 30. sama
mánaðar. Tímafrekast í yfirferðinni hafi verið lokastaðfestingin. Klukkan 7 að morgni 30. nóvember sl. hafi auðkennistölur frambjóðenda
verið lesnar rafrænt úr gagnagrunni yfir í annað forrit sem reiknað hafi út niðurstöður kosninganna.
Ráðgjafi landskjörstjórnar hafi enn fremur fylgst sjálfstætt með skönnuninni og nákvæmni hennar og gert sjálfstæðar athuganir í því
sambandi. Þá hafi fulltrúi dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, dr. James Gilmour, fylgst sérstaklega með talningunni. Talning atkvæða
með þeim hætti sem hér hafi verið lýst hafi farið fram fyrir opnum dyrum hjá landskjörstjórn og hafi þeir getað fylgst með á meðan á henni
stóð sem áhuga höfðu, eins og áður var lýst. Með þeirri aðferð sem hér hafi verið lýst hafi staðfesting á skönnun kjörseðla ávallt farið fram
með mannsauganu ef svo megi segja. Fyrst við grófa yfirferð á einstökum tölum, því næst með skoðun á auðkennistölum og loks við
endanlegt mat.
Að mati landskjörstjórnar hafi ekkert komið fram sem bendi til þess að mistök eða ónákvæmni hafi átt sér stað við færslu upplýsinganna af
kjörseðlunum inn í gagnagrunn. Þá verði ekki séð af kærunni að neinar vísbendingar eða upplýsingar sem þar komi fram réttlæti kröfu um
endurtalningu.
Í greinargerð dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins 22. desember 2010 er að lokum tekið fram ráðuneytið hafi í greinargerð sinni gefið
upplýsingar um framkvæmd kosninganna að því er varði kæruefnin sem og hvernig ákvörðunum hafi verið háttað og á hvaða sjónarmiðum
ákvarðanirnar hafi byggst. Aðkoma ráðuneytisins hafi byggst á ákvæðum í laga nr. 90/2010 og nr. 24/2000 að svo miklu leyti sem
síðarnefndu lögin gátu átt við að mati ráðuneytisins. Ráðuneytið telji að framkvæmd laganna hafi verið í samræmi við reglur þær sem við var
að styðjast og að grundvallarreglan um að kosningarnar væru leynilegar hafi verið virt. Ráðuneytið leggi áherslu á að kosningar til
stjórnlagaþings hafi verið um margt ólíkar kosningum til Alþingis. Í 15. gr. laganna um stjórnlagaþing sé mælt fyrir um að tilteknum
ákvæðum laganna um kosningar til Alþingis skuli beitt eftir því sem við geti átt. Að því marki sem ráðuneytið tók ákvarðanir um framkvæmd
kosninganna leitaðist það við að fylgja málefnalegum sjónarmiðum við matskenndar ákvarðanir eins og lýst hafi verið í greinargerð þess.
Ráðuneytið taki fram að því sé ekki kunnugt um að fyrir kjördag eða á kjördegi hafi verið gerðar athugasemdir við þau atriði er varða
framkvæmd kosninganna til stjórnlagaþings sem athugasemdir kærenda lúti að, hvorki af hálfu kjósenda né frambjóðenda. Þá telji ráðuneytið
að líta verði til þess að í kærunum sé athugasemdum við framkvæmdina komið á framfæri eftir að kosningunni lauk og ekki hafi verið bent á
að einstök tilvik sem gætu hafa valdið því að kjör fulltrúa á stjórnlagaþing teljist af einhverjum ástæðum ólögmætt.
V
Í bréfi Gísla Tryggvasonar, kjörins fulltrúa á stjórnlagaþingi, 31. desember 2010, sem barst Hæstarétti 4. janúar 2011, kemur fram að hann
telji að hugsanlegir ágallar á kosningunum hafi sannanlega ekki haft áhrif á niðurstöðu þeirra.
Að því er varðar leynd kosninganna tekur Gísli fram að ekkert sé kveðið á um það hvernig skuli tryggt að kosning sé leynileg og beri
kærandi því ríka sönnunarbyrði fyrir því að svo hafi almennt ekki verið. Hvorki séu færð fram rök né líkindi fyrir því að kjósandi hafi ekki
getað kosið ótruflaður. Þá telur hann að umrætt fyrirkomulag hafi ekki gert kjósendum auðveldara um vik en endranær að upplýsa um
atkvæði sitt enda hefði hann þá þurft að sýna samverkamanni allt að 25 fjögurra stafa tölur í stað þess að almennt sé við listakosningar aðeins
merktur einn bókstafur og krossað við hann. Fyrirkomulag stjórnlagaþingskosninga, þótt óhentugt hafi þótt að margra mati, tryggi því betur
leynilegar kosningar en almennt gerist í kosningum á Íslandi. Þótt ekki hafi af tæknilegum ástæðum mátt brjóta kjörseðil saman breyti það
engu, enda hafi seðillinn farið beint úr hendi kjósanda inn í lokaða rennu, og á hvolfi, eins og þeir vita sem tekið hafi þátt í kosningum til
stjórnlagaþings.
Í tölvubréfi Gísla Tryggvasonar til Hæstaréttar 17. janúar 2011 telur hann ljóst af lögum og öðrum réttarheimildum, kærum og andsvörum,
svo og upplýsingum sem fram komu við vettvangsgöngu, að samsæri hefði þurft að vera milli fulltrúa í kjörstjórn og fulltrúa við miðlæga
talningu til þess að fræðilegur möguleiki hefði verið á að rjúfa leynd við kosningu eða rekja hvernig einstakir kjósendur hefðu greitt atkvæði.
Því sé ekki haldið fram að „misferli“ hafi átt sér stað. Með vísan til fordæmis Hæstaréttar frá 9. febrúar 1982 (H 1980:192) í máli nr. 96/1980
(liðar II, 1) telji hann því ljóst að hafna beri ógildingu kosningar á grundvelli slíkrar málsástæðu.
VI
Alþingi setti lög nr. 90/2010 um kosningu til stjórnlagaþings sem breytt var með lögum nr. 120/2010. Lögin fela í sér ákvæði sem eiga að
tryggja almenna, frjálsa, leynilega og beina kosningu á grundvelli jafnréttis. Framkvæmd opinberra kosninga í samræmi við þessi
meginsjónarmið er í senn undirstaða og forsenda fyrir lýðræðislegu þjóðskipulagi. Í 1. mgr. 11. gr. laga nr. 90/2010 er tekið fram að um
kjördeildir, kjörstaði og framkvæmd atkvæðagreiðslunnar fari að öðru leyti en því sem sérstaklega felst í ákvæðum laganna samkvæmt lögum
um kosningar til Alþingis. Gilda því með þessum fyrirvara ákvæði III., XIII. og XIV. kafla laga nr. 24/2000 um þessi atriði. Að því er varðar
utankjörfundaratkvæðagreiðslu er tekið fram í 2. mgr. 12. gr. laga nr. 90/2010 að merking í utankjörfundarskrá komi í stað fylgibréfs,
vottunar og skrár skv. 63. og 66. gr. laga um kosningar til Alþingis, en um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar fari að öðru leyti eftir þeim
lögum nema annað leiði af lögum nr. 90/2010. Ákvæði XII. kafla laga nr. 24/2000 giltu því um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar að svo miklu
leyti sem annað leiddi ekki af lögum nr. 90/2010. Í 2. mgr. 13. gr. laga nr. 90/2010 segir síðan að um meðferð atkvæða, gildi þeirra og
framkvæmd talningar fari eftir lögum um kosningar til Alþingis eftir því sem við geti átt að teknu tilliti til 14. gr. Um þetta efni gilda því
ákvæði XV. kafla laga nr. 24/2000. Loks segir í 2. mgr. 15. gr. laga nr. 90/2010 að ákvæði 114. gr., XIX., XX., XXIV. og XXV. kafla laga um
kosningar til Alþingis gildi um kosningar til stjórnlagaþings að svo miklu leyti sem við getur átt.
VI.1
https://www.haestirettur.is/akvardanir/2011/
11/14
Select target paragraph3
Connect to a paragraph
Connect to an entity
Disable highlights
Add to table of contents