7/17/2020
Ákvarðanir 2011
viðstaddir talningu og skal yfirkjörstjórn eða umdæmiskjörstjórn þá kveðja valinkunna menn úr sömu stjórnmálasamtökum, ef unnt er, til að
gæta réttar af hendi listans.“ Á grundvelli þessa ákvæðis bar landskjörstjórn, að breyttu breytanda, að kveðja valinkunna menn til að gæta
réttar frambjóðenda við talningu atkvæða eftir því sem framkvæmanlegt var með hliðsjón af rafrænni talningu og öðrum atvikum. Lög nr.
24/2000 eru byggð á því meginviðhorfi að gagnsæi eigi að ríkja við talningu atkvæða. Skal í því sambandi áréttað að ekki er nóg að rétt sé
talið ef ekki ríkir traust um að þannig hafi verið að verki staðið. Samkvæmt upplýsingum frá landskjörstjórn kom upp vafi við rafrænan lestur
kjörseðla þannig að taka þurfti sérstaka ákvörðun um hvernig skilja bæri skrift kjósenda á tölustöfum 13 til 15% allra kjörseðla. Af þessum
sökum var sérstök þörf á nærveru fulltrúa við talninguna, sem ætlað var að gæta réttar frambjóðenda. Samkvæmt framansögðu verður að telja
það verulegan annmarka á framkvæmd við talningu atkvæða við kosningu til stjórnlagaþings að landskjörstjórn skyldi ekki skipa sérstaka
fulltrúa frambjóðenda til að vera viðstadda talninguna svo sem skylt var samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga nr. 24/2000. Þessi annmarki er einnig
verulegur í ljósi þess, eins og áður segir, að talning atkvæða fór heldur ekki fram fyrir opnum dyrum eins og lögskylt var. Það haggar í engu
þessari niðurstöðu þótt fulltrúi innanríkisráðuneytisins, dr.James Gilmour, hafi fylgst sérstaklega með talningunni.
VI.6
Kosning til stjórnlagaþings samkvæmt lögum nr. 90/2010 var frábrugðin öðrum opinberum kosningum, sem haldnar eru hér á landi, til
dæmis þar sem um persónukjör var að ræða, frambjóðendur voru 522 enda aðeins krafist 30 til 50 meðmælenda, kosning fór fram með því
að rita auðkennistölu frambjóðenda, heimilt var þannig að velja 25 frambjóðendur, heimilt var að telja atkvæði rafrænt og talning atkvæða fór
fram á einum stað á vegum landskjörstjórnar. Það fellur í hlut löggjafans að setja skýrar og ótvíræðar reglur um framkvæmd opinberra
kosninga þar sem tekið er réttmætt tillit til aðstæðna sem leiða af sérstöku eðli þeirra. Það var á hinn bóginn ekki á færi stjórnvalda að víkja
frá skýrum fyrirmælum laga um framkvæmd þeirra vegna fjölda frambjóðenda eða nýs verklags sem hentugt þótti vegna rafrænnar talningar
atkvæða.
Dæmi eru um að í réttarframkvæmd hafi kosningar verið ógiltar þegar framkvæmd þeirra hefur verið í andstöðu við lög og til þess fallin að
rjúfa kosningaleynd. Þannig var til dæmis kosning í Helgafellssveit um sameiningu sveitarfélaga ógilt þar sem kjörseðill var þannig úr garði
gerður að skrift sást í gegnum hann þótt hann væri brotinn saman, sbr. dóm Hæstaréttar frá 8. desember 1994 í máli nr. 425/1994, sem birtur
er á blaðsíðu 2640 í dómasafni réttarins sama ár.
Framangreindir annmarkar á framkvæmd kosningar til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010 verða við úrlausn málsins metnir heildstætt og er
það niðurstaða Hæstaréttar að vegna þeirra verði ekki hjá því komist að ógilda hana.
Ályktarorð:
Kosning til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010 er ógild.
https://www.haestirettur.is/akvardanir/2011/
14/14
Select target paragraph3
Connect to a paragraph
Connect to an entity
Disable highlights
Add to table of contents