7/17/2020 Ákvarðanir 2011 álita að kærandi hafi upplýsingar um að slíkir ágallar hafi verið á kosningu á einstökum kjörstað. Samkvæmt 68. gr. laga um kosningar til Alþingis ákveði sveitarstjórn kjörstað fyrir hverja kjördeild. Lög um kosningar til stjórnlagaþings geri ekki ráð fyrir því að landskjörstjórn hafi afskipti af skipulagi kjörstaðar. Landskjörstjórn hafi því ekki tekið ákvörðun um útlit kjörklefa eða komið að ráðleggingum til sveitarstjórna í því sambandi. Vegna þess að persónukjör til stjórnlagaþings sé í eðli sínu ólíkt kjöri af framboðslistum við kosningar til Alþingis og ljóst að mikill fjöldi einstaklinga geti verið í kjöri svo sem raunin hafi orðið, hafi landskjörstjórn við undirbúning kosningarinnar leitað til sérfræðings í biðraðafræðum við Háskóla Íslands um undirbúning áætlana, hvernig skipuleggja mætti kjörfund með hliðsjón af mögulegum fjölda frambjóðenda og hve langan tíma það myndi taka að fylla út kjörseðilinn. Niðurstöður þeirra athugana voru lagðar fyrir dómsmála- og mannréttindaráðuneytið sem miðlaði þeim áfram til sveitarfélaga. Landskjörstjórn hafi ekki komið frekar að þessum þætti málsins. Hvað viðkomi 1. málslið 1. mgr. 69. gr. sé ljóst að skipulag kjörstaða hafi óhjákvæmilega hlotið að taka mið af þeim sérstöku aðstæðum sem uppi voru þegar ljóst varð, 1. nóvember sl., að 522 frambjóðendur væru í framboði til stjórnlagaþings, en þá hafi aðeins verið 26 dagar til kjördags. Við skipulagningu kjörstaða hafi stjórnvöldum verið töluverður vandi á höndum þegar í ljós hafi komið að kosningarathöfnin gæti tekið umtalsvert lengri tíma, en kjósendur gátu raðað allt að 25 frambjóðendum á kjörseðilinn með því að rita allt að 100 tölustafi í þar til gerða valreiti á seðlinum. Þá þurftu kjörklefar að taka mið af því að frambjóðendur gátu haft með sér kynningarseðil í kjörklefann og gátu umritað hann á kjörseðilinn og að í kjörklefanum skyldi vera listi yfir frambjóðendur, sbr. lokamálsliði 2. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 11. gr. laga um stjórnlagaþing. Gera hefði þurft ráð fyrir hæfilegu plássi til þess að geta fyllt út kjörseðilinn. Þá var einnig til þess að líta að þegar tekið var mið af hefðbundinni þátttöku í kosningum hér á landi hefði ekki verið hætt á annað en að fjölga kjörklefum umtalsvert. Ákvæði laga nr. 24/2000 geymi ekki lýsingu á því úr hvaða efni eða hvernig kjörklefi skuli að öðru leyti gerður. Telja verði nokkuð ljóst að krafan um „lítið borð“ taki mið af útliti kjörseðils í kosningum til Alþingis og hafi því ekki átt við eins og áður segi. Landskjörstjórn áréttaði að henni væri ekki kunnugt um að í framhaldi af þeirri frétt í Ríkissjónvarpinu 4. nóvember sl., sem vísað væri til í kæru, að á kjörfundi eða við framkvæmd atkvæðagreiðslu utan kjörfundar 10.-26. nóvember sl. hefðu komið fram athugasemdir við ráðgert fyrirkomulag kjörklefans. Þá væri landskjörstjórn ekki heldur kunnugt um að fram hefðu komið kvartanir út af því að einstakir kjósendur hefðu ekki getað fyllt út kjörseðilinn í einrúmi eða að aðrir á kjörfundi hefðu haft uppi tilburði við að kíkja á kjörseðil þeirra. Landskjörstjórn tók fram að það væru nýmæli samkvæmt lögum um stjórnlagaþing að kjósendur mættu hafa með sér í kjörklefa kynningarseðil, sbr. niðurlag 2. mgr. 9. gr. laga nr. 90/2010, en slík framkvæmd væri ekki leyfð við Alþingiskosningar. Ákvæði laga um kosningar til Alþingis væru sniðin að sjónarmiðum sem varða kosningaleyndina sem tækju meðal annars mið af hefðbundinni framsetningu kjörseðla þar sem sá sem sæi á kjörseðilinn ætti auðvelt með að átta sig á hvernig atkvæði hefði verið varið. Heimild laga um stjórnlagaþing til að hafa með sér í kjörklefann kynningarseðil tæki á hinn bóginn mið af þeirri staðreynd að sá sem sæi í fljótu bragði á kjörseðil kjósanda sem greitt hefði atkvæði í kosningum til stjórnlagaþings hefði mjög takmarkaða möguleika á að átta sig á hvernig kjósandi hefði varið atkvæði sínu. Þessi sjónarmið hlytu að hafa verulega þýðingu við mat á því að hvaða marki ákvæðum laga um kosningar til Alþingis yrði beitt um kosningar til stjórnlagaþings. Loks áréttaði landskjörstjórn að starfsmenn kjörstjórna á hverjum stað hefðu haldið uppi eftirliti með því að kosningarathöfnin færi fram í samræmi við gildandi reglur. Væri ekkert fram komið sem gerði líklegt að kosningin að því leyti sem hér um ræðir hefði ekki verið leynileg. Í greinargerð dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins 22. desember 2010 tekur ráðuneytið fram að í lokamálslið 4. gr. laganna um stjórnlagaþing sé kveðið á um að kosning til stjórnlagaþings skuli vera leynileg. Við framkvæmd kosninganna af hálfu ráðuneytisins hafi ávallt verið lagt til grundvallar að þetta ákvæði laganna væri virt. Ráðuneytið bendir á að kosning til stjórnlagaþings hafi um margt verið ólík kosningum til Alþingis. Megi þar nefna að ákveðið hafi verið að láta fara fram rafræna talningu á atkvæðum og að í stað þess að kjósendur merktu við nöfn frambjóðenda eða listabókstaf eins og tíðkist í kosningum til Alþingis skyldi kjósandi rita fjögurra tölustafa auðkennistölu frambjóðanda við 1., 2. og allt upp í 25. val sitt. Kjörseðill hafi verið frábrugðinn því sem venja sé til við kosningar til Alþingis og fram hafi farið val á milli 522 frambjóðenda en ekki stjórnmálaflokka. Allt þetta hafi kallað á að ákvæðum laganna um kosningar til Alþingis yrði við framkvæmd kosninganna til stjórnlagaþings ekki beitt fortakslaust heldur einungis eftir því sem þau ættu við eins og tekið sé fram í 1. mgr. 11. gr. laganna um stjórnlagaþing. Með lögum nr. 120/2010 hafi lögunum um stjórnlagaþing verið breytt í þá veru að kjósendur skyldu greiða atkvæði með því að rita fjögurra stafa auðkennistölu frambjóðenda á kjörseðilinn. Við þessa breytingu hafi verið ljóst að það gæti tekið kjósanda langan tíma að fylla út kjörseðilinn sérstaklega ef hann nýtti rétt sinn til að velja 25 frambjóðendur. Gætu þá myndast langar biðraðir við kjörstaði sem hugsanlega myndu fæla frá kjósendur og aftra þeim frá því að nýta kosningarétt sinn. Að tilhlutan ráðuneytisins og landskjörstjórnar hafi verið gerðar mælingar á því hversu marga kjörklefa þyrfti miðað við fjölda kjósenda á kjörskrá og lengd þess tíma sem ráðgert væri að kjósandi dveldi í kjörklefa sbr. meðfylgjandi yfirlit. Voru upplýsingar þar að lútandi sendar öllum sveitarfélögum til upplýsinga. Í ljós hafi komið að á kjörstað þyrfti fleiri kjörklefa en almennt væri þörf á í kosningum til Alþingis. Af þessu leiddi enn fremur að kjósendur hafi þurft að geta sest niður á meðan þeir fylltu út kjörseðilinn en gætu ekki staðið við lítið borð eins og venja sé. Auk þess skyldi í samræmi við 2. mgr. 11. gr. laga um stjórnlagaþing vera í kjörklefa listi yfir frambjóðendur og auðkennistölur þeirra. Vegna fjölda frambjóðenda, sem eins og áður hefur komið fram voru 522, hafi umræddur listi verið stór eða 60 x 60 sm. Hafi ráðuneytið tekið að sér að láta skoða hvort unnt væri að hanna nýja útgáfu af kjörklefa sem mætti þeim þörfum sem kosningarnar til stjórnlagaþings hafi kallað á. Hafi á vegum ráðuneytisins verið gerð teikning af skilrúmum með hliðarstærðir „52 sm x 54 sm og 60 sm“ há sem setja mætti á skólaborð sem væri 64 x 64 sm sem kjósandi gæti setið við og fyllt út kjörseðilinn. Hafi teikning að slíkum kjörklefa sem nota mætti við stjórnlagaþingskosningarnar verið send til allra sveitarfélaga, sbr. meðfylgjandi skjal. Hafi það verið mat ráðuneytisins að í slíkum kjörklefa væri kjósanda gert kleift að kjósa einn og ótruflaður og án þess að aðrir gætu fylgst með því hvernig hann kysi. Þá hafi borið að líta til þess að í 69. gr. laga um kosningar til Alþingis sé ekki að finna lýsingu á því hvernig kjörklefi skuli vera útbúinn að öðru leyti en því að þar megi greiða atkvæði án þess að aðrir geti séð hvernig kjósandi kýs og að þar sé lítið borð sem skrifa megi við. Telji ráðuneytið að sú tegund https://www.haestirettur.is/akvardanir/2011/ 6/14

Select target paragraph3