7/17/2020 Ákvarðanir 2011 Í kæru Þorgríms S. Þorgrímssonar er að því fundið að kjörseðlar hafi verið auðkenndir með strikamerki og númeri á bakhlið. Upplýst er í bréfi starfsmanns verktaka landskjörstjórnar til ritara hennar 13. janúar 2011 að kjörseðlarnir hafi allir verið númeraðir með einkvæmu númeri, og hafi númer seðlanna byrjað á 100001 og endað á 378000. Í kæru Þorgríms kemur fram að kjörseðlunum hafi verið dreift til kjördeilda í samfelldri númeraröð og hafi eftir að kosningu lauk verið unnt að rekja úr hvaða kjördeild þeir komu. Kjörseðlar hafi einnig verið afhentir kjósendum í númeraröð. Kvaðst Þorgrímur vita til þess að í sumum kjördeildum hefðu kjörstjórnir við kosningar skráð nöfn kjósenda á lista jafnóðum og þeir kusu. Með slíkan lista í höndum og númeraröðina væri þannig hægt að rekja atkvæði til einstakra kjósenda. Þá er því haldið fram að heimild 2. mgr. 10. gr. laga nr. 90/2010 taki eingöngu til þess að heimilt hafi verið að strikamerkja kjörseðlana en ekki að númera þá. Í lok 2. mgr. 10. gr. laga nr. 90/2010, eins og henni var breytt með 2. gr. laga nr. 120/2010, er tekið fram að á bakhlið kjörseðils komi auðkennistákn seðilsins. Í athugasemdum með 2. gr. frumvarps þess, sem varð að lögum nr. 120/2010, segir að í athugunum landskjörstjórnar á framkvæmd rafrænnar talningar, einkum á Englandi, Skotlandi og Írlandi, hafi komið fram að það sé forsenda slíkrar talningar að kjörseðillinn hafi sérstakt tákn eins og einnig er rakið í skýringum við 4. gr. frumvarpsins. Slíkt auðkenni sé bundið við seðilinn sjálfan og sé ekki rekjanlegt til kjósanda. Með ákvæðinu sé tekinn af allur vafi um heimildir til að auðkenna kjörseðla sérstaklega fyrir hina rafrænu talningu. Við ákvörðun dómsmála- og mannréttindaráðuneytis, nú innanríkisráðuneytis, á því hvernig auðkenningu kjörseðla skyldi hagað á grundvelli 2. mgr. 10. gr. laga nr. 90/2010, sbr. 2. gr. laga nr. 120/2010, varð að taka fullt tillit til þess að samkvæmt 4. gr. laganna skyldi kosningin vera leynileg. Eins og skýrt er tekið fram í athugasemdum frumvarpsins átti kjörseðill ekki að vera rekjanlegur til kjósanda. Alkunna er að sú aðferð er oft viðhöfð við að stemma af fjölda kjósenda sem komið hafa í kjördeild að rituð eru nöfn kjósenda í þeirri röð sem þeir koma og greiða atkvæði. Þar sem upplýst hefur verið að kjörseðlarnir voru ekki aðeins strikamerktir heldur einnig merktir númerum sem voru í samfelldri hlaupandi töluröð var í reynd afar auðvelt að færa upplýsingar samhliða nöfnum kjósenda þannig að rekja mætti til númera seðla sem þeir höfðu fengið. Verður að telja að ákvörðun um að haga númeramerkingu seðlanna með þeim hætti sem hér hefur verið lýst hafi farið í bága við lokaákvæði 4. gr. laga nr. 90/2010 um leynilegar kosningar, en það er í samræmi við grundvallarákvæði stjórnarskrárinnar um opinberar kosningar, sbr. 5. gr., 26. gr., 1. mgr. 31. gr. og 2. mgr. 79. gr. hennar. Verður að telja þetta verulegan annmarka á framkvæmd kosninganna, ekki síst í ljósi þess, eins og nánar verður vikið að síðar, að telja bar atkvæði fyrir opnum dyrum og að viðstöddum fulltrúum samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga nr. 24/2000. VI.2 Bæði Þorgrímur S. Þorgrímsson og Óðinn Sigþórsson kæra að hefðbundnir kjörklefar hafi ekki verið notaðir við kosningarnar heldur hafi hver kjósandi setið við borð í opnu rými og greitt atkvæði ásamt öðrum kjósendum, en á því voru 60 sm há pappaskilrúm, sem sett voru á þrjár hliðar borðs til að skilja að kjósendur. Slíkum skilrúmum hafi síðan verið raðað upp hlið við hlið. Útilokað sé annað en að kjósendur hafi getað kíkt á kjörseðil næsta kjósanda, t.d. þegar þeir stóðu upp frá borði eftir að hafa fyllt út eigin kjörseðil eða gengu fyrir aftan annan kjósanda og horfðu yfir öxl hans. Þeir telja þennan umbúnað vera ótvírætt brot á 1. mgr. 69. gr. laga nr. 24/2000, sbr. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 90/2010, en þar sé kveðið svo á um að kjörklefi skuli þannig búinn að þar megi greiða atkvæði án þess að aðrir geti séð hvernig kjósandi kýs. Telja kærendur að kosningarnar hafi ekki verið leynilegar af þessum sökum. Í 69. gr. laga nr. 24/2000 er fjallað um umbúnað kjörklefa. Þar segir að í hverri kjördeild skuli vera hæfilegur fjöldi kjörklefa. Kjörklefi skuli þannig búinn að þar megi greiða atkvæði án þess að aðrir geti séð hvernig kjósandi kýs. Í hverjum kjörklefa skuli vera lítið borð sem skrifa megi við. Þá er kjósandi hefur tekið við kjörseðlinum fer kjósandi með hann inn í kjörklefann, þar sem kjósandinn má einn vera, og að borði því er þar stendur, sbr. 1. mgr. 81. gr. sömu laga. Þarfnist kjósandi hjálpar við kosningu sökum sjónleysis eða þess að honum sé hönd ónothæf skal sá úr kjörstjórninni sem kjósandi nefnir til veita honum aðstoð til þess í kjörklefanum, sbr. 86. gr. sömu laga. Í 85. gr. laganna er loks mælt svo fyrir að kjósandi skuli ganga út úr klefanum þegar hann hafi gengið frá kjörseðlinum og að atkvæðakassanum og leggja seðilinn í kassann í viðurvist fulltrúa kjörstjórnar. Af hálfu landskjörstjórnar var upplýst við munnlegan málflutning að í sumum kjördeildum hefðu verið notaðir hefðbundnir kjörklefar. Í öðrum kjördeildum hefðu verið notuð pappaskilrúm sem ráðuneytið hefði látið hanna. Hafi á vegum ráðuneytisins verið gerð teikning af skilrúmum með hliðarstærðir „52 sm x 54 sm og 60 sm“ há sem setja mætti á skólaborð sem væri 64 sm x 64 sm sem kjósandi gæti setið við og fyllt út kjörseðilinn. Að mati Hæstaréttar uppfylla framangreind pappaskilrúm það ekki að geta talist kosningaklefi í skilningi laga nr. 24/2000 þar sem þau afmarka ekki það rými sem kjósanda er eftirlátið til að kjósa í með þeim hætti að kjósandi sé þar í einrúmi. Þá uppfyllti þessi umbúnaður heldur ekki það skilyrði að þar mætti greiða atkvæði án þess að aðrir gætu séð hvernig kjósandi kaus, þar sem unnt var að sjá á kosningaseðil væri staðið fyrir aftan kjósanda sem sat við pappaskilrúmin að fylla út kjörseðil. Á hinn bóginn þykir mega fallast á með landskjörstjórn og innanríkisráðuneytinu að sá háttur, sem hafður var á kosningunni um að hver kjósandi hefði fjögurra stafa auðkennistölu sem rituð var á kjörseðilinn, hafi að nokkru verið til þess fallinn að viðhalda leynd um efni kjörseðils þótt á hann sæist, enda voru 522 frambjóðendur í kjöri og kjósandi gat valið 25 þeirra. Ekki er hins vegar hægt að fullyrða að þetta fyrirkomulag hafi nægt til að viðhalda leynd í öllum tilvikum þar sem sést hefur á kosningaseðla vegna framangreindra annmarka. Þá er einnig rétt að hafa í huga að reglum um umbúnað kjörklefa er ætlað að tryggja að kosning sé leynileg og frjáls með því að koma í veg fyrir að aðrir geti beint eða óbeint fylgst með og þar með haft áhrif á hvernig kjósandi kýs. Þar sem unnt var að sjá á kjörseðil kjósanda, sem nokkurn tíma hlaut að taka að fylla út ef allir valkostir voru notaðir, var það til þess fallið að takmarka rétt kjósanda til að nýta frjálsan kosningarétt sinn ef maður, sem hann var háður, fylgdist með honum eða kjósandi hafði raunhæfa ástæðu til ætla að svo gæti verið. Telst þetta hafa verið annmarki við framkvæmd kosninganna. VI.3 https://www.haestirettur.is/akvardanir/2011/ 12/14

Select target paragraph3

Connect to a paragraph
Connect to an entity
Disable highlights
Add to table of contents