7/17/2020
Ákvarðanir 2016
nr. 36/1945.“ Með því að kæran lýtur að atriðum, sem eiga eftir ákvæðum laga nr. 36/1945 undir innanríkisráðherra, gaf
Hæstiréttur ráðuneyti hans kost á að koma á framfæri athugasemdum og bárust þær réttinum 29. júní 2016.
Með vísan til 2. mgr. 14. gr. laga nr. 36/1945 verður að líta svo á að fyrrgreindar kröfur kæranda beinist að því að forsetakjör
25. júní 2016 verði fellt úr gildi.
Að ákvörðun þessari standa sjö af dómurum Hæstaréttar, sbr. 4. mgr. 7. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla.
I
Samkvæmt auglýsingu forsætisráðherra 5. mars 2016 fór kjör forseta Íslands sem fyrr segir fram 25. júní 2016. Í
auglýsingunni var tekið mið af því að samkvæmt 4. gr. laga nr. 36/1945 beri þeim, sem hefur hug á að gefa kost á sér í
forsetakjöri, að skila til innanríkisráðuneytisins ekki síðar en fimm vikum fyrir kjördag framboði ásamt tilteknum fjölda
meðmælenda úr hverjum landsfjórðungi og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir séu kosningarbærir, sbr. 1. mgr. 3. gr. sömu
laga, en framboðsfrestur í þessu forsetakjöri rann þannig út 20. maí 2016. Í samræmi við 4. gr. laganna birti innanríkisráðherra
auglýsingu 25. maí 2016, þar sem fram kom að níu nafngreindir menn væru í framboði við forsetakjörið. Áður en þetta lá fyrir
hafði atkvæðagreiðsla utan kjörfundar staðið yfir á fjórðu viku eða frá 30. apríl 2016.
Í kæru er vísað til þess að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hafi byrjað „áður en kjöri var lýst.“ Kærandi kveðst hafa orðið
þess var að kjósendur, til dæmis á Norðurlöndunum, hafi þurft að fara langan veg til að greiða atkvæði á þennan hátt og megi
af því sjá „að fyrirkomulagið sé eitthvað ekki í lagi.“ Áður en framboðsfresti lauk hafi sitjandi forseti meðal annarra tilkynnt að
hann myndi bjóða sig fram, en dregið það síðan til baka. Í 4. gr. laga nr. 36/1945 sé „því lýst hvernig og hvenær hverjir séu í
kjöri“, en í 6. gr. laganna sé „aðeins vísað til þeirra sem í kjöri eru.“ Geti því atkvæðagreiðsla utan kjörfundar ekki hafist „fyrr en
það er búið að sinna skyldu 4. gr.“ Kærandi spyrji hvar heimild sé að finna til að innanríkisráðuneytið ákveði að
atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefjist „áður en því er lýst yfir formlega hverjir séu í kjöri“. Ráðuneytið hafi í bréfi til kæranda
27. maí 2016 vísað um þetta til ákvæða laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis, en þar sé „ekki neitt sem heimilar
utankjörstaðakosningar fyrr en kjöri er lýst“, heldur aðeins „að hefja megi kosningar sem fyrst og ekki fyrr en 8 vikum fyrir
kjördag.“
Í athugasemdum, sem innanríkisráðuneytið beindi til Hæstaréttar í tilefni af framangreindri kæru, segir að lög nr. 36/1945
séu fáorð um framkvæmd forsetakosninga og sé þar um flest sem hana varðar vísað til laga nr. 24/2000. Þannig komi meðal
annars fram í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 að um kosningaathöfn við forsetakjör, undirbúning hennar, atkvæðagreiðslu utan
kjörstaða og á kjörstað fari í öðrum atriðum en þeim, sem beinlínis er mælt fyrir um í lögunum, eftir lögum um kosningar til
Alþingis. Hafi því upphaf atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við forsetakjör alla tíð farið eftir reglum laga um kosningar til
Alþingis sem hafi verið í gildi á hverjum tíma. Allt til ársins 1987 hafi atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við alþingiskosningar
ekki getað byrjað fyrr en framboðsfrestur hafi verið liðinn, en á því hafi orðið breyting með lögum nr. 80/1987 um kosningar til
Alþingis. Regla um þetta, sem þá var tekin upp, komi nú fram í 57. gr. laga nr. 24/2000, þar sem mælt sé svo fyrir að
atkvæðagreiðsla utan kjörfundar megi hefjast átta vikum fyrir kjördag. Samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 gildi þessi
regla um forsetakjör, en hafa megi í huga að þótt hefja megi atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við kosningar til Alþingis með
þessum fyrirvara renni framboðsfrestur við þær ekki út fyrr en 15 dögum fyrir kjördag. Þá verði jafnframt að gæta að því að
samkvæmt 88. gr. og 2. mgr. 91. gr. laga nr. 24/2000, sem gildi við forsetakjör eftir 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945, geti kjósandi,
sem greitt hefur atkvæði utan kjörfundar, gert það aftur hvort heldur á sama hátt eða á kjörfundi. Í athugasemdum
ráðuneytisins er þess einnig getið að samkvæmt upplýsingum, sem það hafi aflað, hafi innan við 1.500 kjósendur greitt
atkvæði utan kjörfundar við forsetakjörið á tímabilinu frá 30. apríl til 25. maí 2016.
II
Í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945, eins og greininni var breytt með 2. gr. laga nr. 6/1984, kemur fram að kjósandi, sem greiðir
atkvæði utan kjörfundar við forsetakjör, riti á kjörseðil nafn þess frambjóðanda, sem hann vill kjósa af þeim sem í kjöri eru.
Atkvæði skuli ekki meta ógilt þótt sleppt sé kenninafni eða ættarnafn eitt sett ef greinilegt er eftir sem áður við hvern sé átt. Í
lögunum er ekki mælt frekar fyrir um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við forsetakjör að öðru leyti en því að samkvæmt 3. mgr.
6. gr. þeirra fer um þá atkvæðagreiðslu samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis eftir því sem við á.
Síðastnefnd tilvísun í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 nær til ákvæða XII. kafla laga nr. 24/2000. Til þess kafla heyrir 57. gr.
laganna, þar sem mælt er fyrir um rétt kjósanda til að greiða atkvæði utan kjörfundar. Þar segir meðal annars að hefja skuli
kosningu utan kjörfundar svo fljótt sem kostur er eftir að kjördagur hefur verið auglýstur, en þó ekki fyrr en átta vikum fyrir
kjördag. Af 1. mgr. 30. gr. og 57. gr. laga nr. 24/2000 leiðir að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við kosningar til Alþingis getur
þannig hafist átta vikum fyrir kjördag eða 41 degi áður en fimmtán daga framboðsfresti við þær lýkur. Samkvæmt því hefur
löggjafinn ákveðið að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar geti byrjað við kosningar til Alþingis þótt ekki liggi endanlega fyrir
hverjir bjóði sig þar fram. Vegna fyrrgreindrar tilvísunar 3. mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 gildir sama regla við forsetakjör án tillits
til þess að það valdi því að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar geti hafist þremur vikum áður en fimm vikna framboðsfresti lýkur
og í það minnsta fjórum vikum áður en auglýst er eftir 4. gr. sömu laga hverjir séu í kjöri. Þessu getur orðalag fyrri málsliðar 1.
mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 ekki breytt, en til þess verður og að líta að ef ekki væri unnt að beita ákvæði 57. gr. laga nr. 24/2000
við forsetakjör myndi engin lögfest regla gilda um hvenær atkvæðagreiðsla utan kjörfundar gæti hafist þar. Þá verður einnig að
taka tillit til þess að rúmur tími til slíkrar atkvæðagreiðslu er settur kjósendum til hagsbóta samhliða því að þeir geti allt fram á
kjördag kosið á nýjan leik eftir áðurnefndum ákvæðum 88. gr. og 2. mgr. 91. gr. laga nr. 24/2000, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr.
https://www.haestirettur.is/akvardanir/2016/
6/17