7/17/2020
Ákvarðanir 2011
Bæði Þorgrímur S. Þorgrímsson og Óðinn Sigþórsson kæra að kjósendum hafi verið bannað að brjóta kjörseðilinn saman eftir að hann hafði
verið útfylltur. Telja þeir það fara í bága við skýr fyrirmæli 85. gr. laga nr. 24/2000, sbr. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 90/2010, en þar komi fram að
þegar kjósandi hafi gengið frá kjörseðli sínum skuli hann brjóta seðilinn í sama brot og hann var í þegar hann tók við honum, ganga út úr
klefanum og að atkvæðakassanum og leggja seðilinn í kassann í viðurvist fulltrúa kjörstjórnar.
Í 10. gr. laga nr. 90/2010 er að finna ákvæði um gerð og prentun kjörseðla við kosningar til stjórnlagaþings. Þar eru í 2. mgr. reglur um efni
kjörseðla. Verður talið að með þeim sé kveðið á um þau atriði sem þetta varða og eru sérstök fyrir þessar kosningar og þannig frábrugðin því
sem kveðið er á um efni kjörseðla við kosningar til Alþingis í 52. gr. laga nr. 24/2000. Svo sem fyrr greinir er í lokamálslið 4. gr. laga nr.
90/2010 kveðið svo á að kosning til stjórnlagaþings skuli vera leynileg. Regla í 85. gr. laga nr. 24/2000 um að kjósandi skuli brjóta seðilinn
saman áður en hann leggur seðilinn í kjörkassann hefur það markmið að tryggja rétt og skyldu kjósanda til leyndar um það hvernig hann ver
atkvæði sínu. Ekki er í 10. gr. laga nr. 90/2010 vikið berum orðum frá þessari reglu svo einfalt sem það hefði verið ef vilji hefði staðið til þess
við setningu laganna. Af þessum ástæðum og vegna tilvísunar 1. mgr. 11. gr. sömu laga um að framkvæmd atkvæðagreiðslu skuli fara
samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis, verður talið að 85. gr. þeirra laga gildi við kosningar til stjórnlagaþings og þá að sínu leyti
einnig 53. gr. vegna tilvísunar 85. gr. til efnis þeirrar greinar. Reglum þessara lagaákvæða var ekki fylgt við kosninguna og telst það annmarki
við framkvæmd hennar.
Garðar Gíslason og Viðar Már Matthíasson eru á annarri skoðun um þetta atriði. Þeir benda á, að í 11. gr. laga nr. 90/2010 sé ákveðið að um
kjördeildir, kjörstaði og framkvæmd atkvæðagreiðslunnar fari ,,að öðru leyti samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis eftir því sem við á.“
Í þessu felist sá fyrirvari, að ákvæði laga nr. 24/2000 geti eingöngu átt við um hin tilgreindu atriði, ef ekki sé á annan veg mælt í lögum nr.
90/2010. Í 10. gr. síðast nefndra laga séu ákvæði um gerð og prentun kjörseðla, þar sem í 2. mgr. séu ítarlegar reglur um gerð þeirra. Eins og
að framan greinir felst í þessu að ákvæði laga nr. 24/2000 um kjördeildir og kjörstaði, þar með talið um kjörklefa, hafi gilt um kosningar til
stjórnlagaþings. Á hinn bóginn gildi ákvæði XIV. kafla laga nr. 24/2000, sem fjallar um atkvæðagreiðslu á kjörfundi, einungis að hluta um
kosningar til stjórnlagaþings. Þannig geti ýmis ákvæði kaflans eðli málsins samkvæmt ekki átt við um kjörseðla, enda miði þau ákvæði
samkvæmt orðum sínum við listakosningar, sbr. t.d. 2. mgr. 81. gr., 82. gr. og 83. gr. Eins og áður greinir séu sérákvæði um kjörseðil í 2. mgr.
10. gr. laga nr. 90/2010. Þar sé ekki við það miðað að brot sé í kjörseðli, sem kjósandi eigi að nota. Í 85. gr. laga nr. 24/2000, sé mælt fyrir um
að kjósandi skuli, þegar hann hefur greitt atkvæði, brjóta seðilinn ,,í sama brot og hann var í þegar hann tók við honum.“ Regla þessi hefur
bein tengsl við ákvæði 1. mgr. 53. gr. laganna, sem kveður á um að prenta skuli kjörseðla þannig að þeir séu brotnir saman og að óprentaða
hliðin snúi út. Í 1. mgr. 10. gr. laga nr. 90/2010 sé sérákvæði um prentun kjörseðla og sé þar ekki gert ráð fyrir að brot skuli vera á kjörseðli.
Verði því ekki talið að það hafi verið andstætt lagafyrirmælum um framkvæmd kosningar til stjórnlagaþings að ekki hafi verið gert ráð fyrir
að kjörseðlar væru brotnir saman áður en þeir væru settir í kjörkassa.
VI.4
Þorgrímur S. Þorgrímsson kærir að þeir „pappírskjörkassar“ sem notaðir hafi verið í stað hefðbundinna kjörkassa hafi ekki uppfyllt skilyrði 2.
mgr. 69. gr. laga nr. 24/2000, sbr. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 90/2010, en þar segi að atkvæðakassinn skuli þannig útbúinn að ekki sé unnt að ná
kjörseðli úr honum án þess að opna hann og þannig að unnt sé að læsa honum. Í 76. gr. komi síðan fram að áður en atkvæðagreiðsla hefjist
skuli kjörstjórnin og umboðsmenn gæta þess að atkvæðakassi sé tómur og síðan læsa honum. Umræddir „pappírskjörkassar“ hafi ekki
uppfyllt þessi skilyrði.
Landskjörstjórn bendir á að umræddir kjörkassar hafi ekki verið úr pappa heldur úr sérstöku plastefni. Kassarnir hafi sérstaklega verið
hannaðir til þess að taka á móti kjörseðlum og verið notaðir í kosningum annars staðar, meðal annars í Skotlandi.
Þeir kjörkassar sem notaðir voru við kosningar til stjórnlagaþings uppfylltu ekki skilyrði 2. mgr. 69. gr. laga nr. 24/2000 um að unnt væri að
læsa þeim. Þá voru kjörkassarnir þeirrar gerðar að unnt var án mikillar fyrirhafnar að taka þá í sundur og komast í kjörseðla. Þessi
umbúnaður kjörkassanna var því til þess fallinn að draga úr öryggi og leynd kosninganna. Telst þetta því annmarki við framkvæmd þeirra.
VI.5
Skafti Harðarson kærir að frambjóðendum hafi ekki verið heimilað og gert kleift að hafa umboðsmann viðstaddan kosninguna sjálfa svo og
talningu atkvæða svo sem skylt hafi verið samkvæmt 39. gr. laga nr. 24/2000. Þá hafi talning ekki farið fram fyrir opnum dyrum.
Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 90/2010 átti talning atkvæða að fara fram fyrir opnum dyrum hjá landskjörstjórn. Upplýst var í munnlegum
málflutningi að landskjörstjórn hefði mótað sér þá afstöðu fyrir kosningarnar að öðrum yrði ekki hleypt inn fyrir dyr á talningarstað en þeim
sem haft hafi hlutverk við talninguna á vegum landskjörstjórnar. Hins vegar hefðu þeir sem áhuga höfðu geta farið upp á svalir sem voru
meðfram talningarsalnum og fylgst með talningu inn um glugga auk þess sem hægt hefði verið að fylgjast með störfum landskjörstjórnar og
starfsfólks á hennar vegum gegnum tvær stórar glerhurðir.
Ákvæði 1. mgr. 13. gr. laga nr. 90/2010, um að talning atkvæða fari fram fyrir opnum dyrum hjá landskjörstjórn, þykir bera að skýra til
samræmis við 1. mgr. 98. gr. laga nr. 24/2000 þar sem fram kemur að talning atkvæða skuli fara fram fyrir opnum dyrum svo að kjósendum
gefist kostur á að vera við eftir því sem húsrúm leyfi. Bar landskjörstjórn þannig að leyfa aðgang að húsnæði því þar sem talning fór fram
eftir nánari ákvörðun sinni þar sem haldið var uppi reglu og öryggi og aðgangur veittur eftir því sem húsrúm leyfði. Verður að telja það
annmarka á framkvæmd talningar við kosningar til stjórnlagaþings að hún hafi ekki farið fram fyrir opnum dyrum.
Eins og um getur í upphafi þessa kafla verður ekki séð að ákvæði IX. kafla laga nr. 24/2000 um umboðsmenn hafi gilt um kosningu til
stjórnlagaþings. Hver frambjóðandi til kosninga á stjórnlagaþing átti því ekki rétt á að hafa tvo umboðsmenn viðstadda þegar landskjörstjórn
úrskurðaði í málum samkvæmt 40. gr. laga nr. 24/2000. Á hinn bóginn var svo fyrir mælt í 13. gr. laga nr. 90/2010 að um meðferð atkvæða,
gildi þeirra og framkvæmd talningar, færi eftir lögum um kosningar til Alþingis eftir því sem við ætti að teknu tilliti til 14. gr. laganna. Um
framkvæmd talningarinnar giltu því meðal annars ákvæði 2. mgr. 98. gr. laga nr. 24/2000 en þar segir: „Nú eru umboðsmenn lista eigi
https://www.haestirettur.is/akvardanir/2011/
13/14
Select target paragraph3
Connect to a paragraph
Connect to an entity
Disable highlights
Add to table of contents