7/17/2020
Ákvarðanir 2012
Teljast þetta ótvíræðir gallar á forsetakjörinu. Í 3. mgr. 120. gr. laga nr. 24/2000, sbr. einnig 94. gr. laga nr. 5/1998 um kosningar til
sveitarstjórna, kemur fram sú meginregla í íslenskum rétti að almennar kosningar skulu því aðeins lýstar ógildar að slíkir gallar séu á þeim að
ætla megi að þeir hafi haft áhrif á kosningaúrslit. Frá þessari meginreglu er gerð undantekning með því að mælt er svo fyrir í fyrrnefnda
lagaákvæðinu að alþingiskosningar skuli allt að einu ógiltar ef þingmaður, umboðsmenn hans eða meðmælendur hafa vísvitandi átt sök á
misfellum, enda séu þær verulegar. Í lögum nr. 36/1945 er ekki kveðið á um það hvenær gallar á forsetakjöri skuli leiða til ógildingar þess.
Þótt ekki sé þar efnislega vísað til 3. mgr. 120. gr. laga nr. 24/2000 hljóta sömu reglur eftir eðli máls að eiga við þegar úrskurðað er um gildi
forsetakjörs og alþingiskosninga, enda er í báðum tilvikum um að ræða almennar kosningar á landinu öllu. Samkvæmt því verður ekki litið
svo á að fyrrgreindir gallar á forsetakjörinu 30. júní 2012 eigi að leiða til ógildingar þess, enda voru þeir með öllu óviðkomandi þeim
frambjóðanda, sem flest atkvæði hlaut, umboðsmönnum hans og meðmælendum og höfðu augljóslega engin áhrif á úrslit kjörsins.
Samkvæmt öllu framangreindu er hafnað kröfu Ásdísar Jennu Ástráðsdóttur, Guðmundar Magnússonar og Rúnars
Björns Herrera Þorkelssonar um að kjör forseta Íslands í kosningum 30. júní 2012 verði ógilt.
https://www.haestirettur.is/akvardanir/2012/
5/5