7/17/2020 Ákvarðanir 2011 skyldi notast við rafræna kjörskrá við kosningarnar, sbr. 15. gr. a. laga um stjórnlagaþing og 5. gr. laga nr. 120/2010. Af þessari ákvörðun hefði leitt að mörk kjördæma, kjörstaðir og kjördeildir skyldu vera hin sömu og í síðustu alþingiskosningum og ákvæðum laganna sem byggðust á rafrænni kjörskrá yrði ekki beitt. Sé þessu nánar lýst í skýringum við 5. gr. þess frumvarps sem varð að lögum nr. 120/2010. Auk þess benti Landskjörstjórn á að frumvarpi því sem varð að lögum nr. 90/2010 hefði verið breytt umtalsvert í meðförum Alþingis. Almennt séu lögskýringargögn um framangreind atriði fáorð. Lög um kosningar til stjórnlagaþings séu sérlög um skipan ráðgefandi stjórnlagaþings til að endurskoða stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, og gangi ákvæði laganna því framar almennum lögum um kosningar, fyrst og fremst lögum um kosningar til Alþingis. Þau lög eigi sér beina stoð í 2. mgr. 33. gr. stjórnarskrárinnar og fjalli um skipan Alþingis og meðferð löggjafarvalds. Af augljósum ástæðum sé því ekki unnt að jafna saman í öllum atriðum kosningum til stjórnlagaþings sem fara fram á grundvelli laga nr. 90/2010 og kosningum til Alþingis sem fram fara á grundvelli 31., 33. og 34. gr. stjórnarskrárinnar og laga nr. 24/2000. Líta verði svo á að mæli lög um stjórnlagaþing ekki á annan veg skuli almennt beita ákvæðum laga um kosningar til Alþingis eftir því sem við eigi. Ljóst sé að slík tilvísun laga um stjórnlagaþing, að ákvæðum laga um kosningar til Alþingis yrði beitt eftir því sem við getur átt, hafi falið þeim stjórnvöldum sem fóru með framkvæmd kosninganna ákveðið mat. Það hafi ráðist nánar af kröfum m.a. um leynilegar kosningar og að kosningar séu opnar og lýðræðislegar að öðru leyti. Að svo miklu leyti sem ákvarðanir landskjörstjórnar og annarra stjórnvalda byggðust á slíku lögbundnu mati sé óhjákvæmilegt annað en að líta m.a. til þess að kosningar til stjórnlagaþings séu hreinar persónukosningar en í kosningum til Alþingis sé kosið á milli lista stjórnmálaflokka. Þá hafi form kjörseðils verið gjörólíkt, sem aftur setji mark sitt á kosningarathöfnina og ýmsa þætti er henni tengjast. Það sem skipti ekki síður miklu máli sé að kosningar til stjórnlagaþings hafi verið án fordæma hér á landi og þó að víðar væri leitað. Aldrei hafi svo margir, eða 522, boðið sig fram í persónukosningum. Allar ákvarðanir stjórnvalda, sem að framkvæmd kosninganna komu, hafi því hlotið að taka mið af framangreindu, svo sem um gerð kjörseðils, talningaraðferð og húsnæði fyrir talninguna. Þá benti landskjörstjórn á að það sé einkenni laga um kosningar til Alþingis að þau geymi almennt nokkuð ítarlega lýsingu á atriðum sem lúta að undirbúningi og skipulagi alþingiskosninga, þ. á m. kosningaathöfninni sjálfri. Ákvæði þessi miði að því að kosning sé leynileg. Þeim sé enn fremur ætlað að tryggja að kosningar geti talist opnar og frjálsar og að í því sambandi séu reglur kosninganna fyrirfram kunnar frambjóðendum og kjósendum. Að mati landskjörstjórnar verði í þessu ljósi almennt að líta svo á að athugasemdir kjósenda og sérstaklega frambjóðenda við framkvæmd kosninga til stjórnlagaþings hafi átt að koma fram strax og tilefni var til. Þannig hljóti síðar framkomnar athugasemdir, sem ekki vísi til einstakra atvika eða ákvarðana stjórnvalda, að hafa minna vægi. Landskjörstjórn sé ekki kunnugt um að athugasemdir hafi verið gerðar við framkvæmd kosninganna að því er varðar þau atriði sem kærur Skafta, Óðins og Þorgríms lúti að eða beinlínis hafi reynt á slík atriði í vinnu kjörstjórnanna. Í kosningum til stjórnlagaþings hafi það einkum verið þrjú atriði sem horfðu á annan hátt við kjósendum en þeir eiga að venjast í kosningum til Alþingis: Form kjörseðils, kj��rklefar og kjörkassar. Þó að landskjörstjórn hafi ekki tekið ákvarðanir um þessi atriði hafi hún verið höfð með í ráðum um þau, einkum varðandi form kjörseðilsins, en gerð hans gat skipt miklu við talningu með rafrænni aðferð. Um 1. Í tilefni af kæru Þorgríms S. Þorgrímssonar um að kjörseðlar hafi verið auðkenndir með strikamerki á bakhlið tekur landskjörstjórn fram að heimild til þess að auðkenna kjörseðil með strikamerki komi fram í 2. mgr. 10. gr. laga nr. 90/2010. Í lokamálslið segi svo um auðkenningu seðilsins: „Á bakhlið kjörseðils komi auðkennistákn seðilsins.“ Ákvæðið sé afdráttarlaust um það að á bakhlið kjörseðils skyldi vera auðkennistákn. Ein meginforsenda rafrænnar talningar sé að kjörseðill hafi sérstakt auðkennistákn eða merkingu. Slíkt auðkenni sé bundið við seðilinn sjálfan og verði ekki rakið til kjósanda. Komi þetta meðal annars fram í skýringum við ákvæðið í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 120/2010. Tilviljun ein ráði því hvaða kjósandi fái hvaða seðil, þegar hann gefi sig fram á kjörfundi. Auðkenni seðilsins eða strikamerkið sé ekki skráð við afhendingu hans. Þá séu strikamerkin þess eðlis að nær útilokað eigi að vera að lesa þau um leið og seðillinn sé afhentur auk þess sem hann sé að lokum settur í kjörkassa með öðrum kjörseðlum. Strikamerkið geri það að verkum: (a) að mögulegt sé að staðreyna að ekki séu aðrir seðlar í umferð en þeir sem dómsmálaráðuneytið lét prenta fyrir kosningarnar. (b) að við talninguna sjálfa sé unnt að kalla fram mynd af seðlinum, t.d. við afstemningu, við færslu umframatkvæða og atkvæða sem ekki hafa nýst við 1. val kjósanda. (c) Loks hafi strikamerkið þann tilgang að gera það mögulegt að finna kjörseðil sem ágreiningur kann að vera um og að ganga úr skugga um að ekki séu vankantar á hinni rafrænu talningu. Í því sambandi verði að vera unnt að bera saman mynd af kjörseðlinum sem tekin sé af honum með skönnun og bera hana saman við sjálfan kjörseðilinn. Tilgangur strikamerkingarinnar sé eingöngu í þágu öryggis við framkvæmd kosninganna. Þá er því hafnað að lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eigi hér við. Eins og lýst er hér að ofan byggðist auðkennismerking kjörseðils á skýrri lagaheimild, þar sem til grundvallar lágu málefnaleg sjónarmið. Auk þess verður ekki séð að auðkenning kjörseðils með þeim hætti sem hér hefur verið lýst feli í sér söfnun persónuupplýsinga. Landskjörstjórn lítur svo á að um varðveislu og förgun kjörgagna eigi að fylgja 104. gr. laga um kosningar til Alþingis. Í greinargerð dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins 22. desember 2010 eru sett fram um þetta sömu sjónarmið og fram komu hjá landskjörstjórn. Þar er einnig tekið fram að landskjörstjórn hafi gert athuganir á framkvæmd rafrænnar talningar, einkum á Englandi, Skotlandi og Írlandi, og þar hafi komið fram að það sé forsenda rafrænnar talningar að kjörseðillinn hafi sérstakt tákn. Slíkt auðkenni sé bundið við seðilinn sjálfan og sé ekki rekjanlegt til kjósanda. Í bréfi landskjörstjórnar til Hæstaréttar 10. janúar 2011 er tekið fram að nauðsynlegt hafi verið talið við talningu atkvæða og uppgjör kosninga að unnt væri að þekkja hvern og einn kjörseðil á einkvæman hátt en með því hafi verið unnt að koma í veg fyrir tvítalningu, og tryggja að seðlar sem notaðir hafi verið í forprófun á talningakerfinu birtust ekki í hinni raunveruleg atkvæðatalningu. Þá kemur fram að https://www.haestirettur.is/akvardanir/2011/ 4/14

Select target paragraph3