7/17/2020
Ákvarðanir 2011
1. „Fyrst er sætishlutur ákveðinn, en hann er sú tala atkvæða sem frambjóðandi þarf í fyrstu að ná til þess verða úthlutað sæti. Í
kosningum til stjórnlagaþings reiknaðist sætishluturinn: 3.167 atkvæði.
2. Því næst eru atkvæðin flokkuð eftir nöfnum frambjóðenda sem tilgreindir eru í 1. vali. Nái frambjóðandi sætishlutnum strax í
upphafi er honum þegar úthlutað sæti, sbr. 5. tölul.
3. Í 6. tölul. er fjallað um færslu umframatkvæða þeirra sem ná kjöri samkvæmt 5. tölul. Atkvæði eru færð samkvæmt næsta
tiltæka vali hvers einstaks kjósanda þeirra. Fært er það hlutfall hvers atkvæðis að eftir sitji þau atkvæðisbrot að samanlagt nægi þau
nákvæmlega fyrir sætishlut. Atkvæði (eða atkvæðisbrot), sem ekki tekst að færa sakir skorts á nafni á viðkomandi seðli, eru lögð til
hliðar sem ófæranleg.
4. Þegar ekki finnst lengur neinn frambjóðandi með atkvæðisgildi sem er jafnt eða hærra en sætishlutur er sá frambjóðandi sem nú
hefur lægst atkvæðisgildi dæmdur úr leik. Atkvæðisgildi hans eru færð í heilu lagi samkvæmt næsta gilda vali á hverjum þessara
seðla. Með gildu vali er átt við að frambjóðandi sem hefur verið valinn og hefur ekki verið dæmdur úr leik eða náð sætishlut.
5. Komist frambjóðandi yfir sætishlut eftir tilfærslu atkvæða skal honum jafnóðum úthlutað sæti og umframatkvæði hans færð,
eins og fyrr segir.
6. Í 8. tölul. er fjallað um lok úthlutunar. Þar segir: „Beita skal ákvæðum 6. og 7. tölul. svo lengi sem við á en þó þannig að ákvæði
6. tölul. hafi ávallt forgang. Þegar tala þeirra frambjóðenda sem enn koma til álita að hljóta sæti er orðin jöfn tölu þeirra 25 sæta sem
eftir er að ráðstafa skal sætunum úthlutað til þessara frambjóðenda án frekari útreikninga.““
8. töluliðurinn sé þannig ótvíræður. Hann taki á því þegar tala þeirra frambjóðenda, sem enn hafi ekki verið tekin afstaða til, sé jöfn tölu
þeirra sæta sem enn er óráðstafað. Þá segi að frekari útreikningum skuli hætt og þessum sætum úthlutað til þeirra frambjóðenda sem eftir séu.
Um fræðilegan bakgrunn úthlutunarreglnanna tók landskjörstjórn eftirfarandi fram í greinargerð sinni:
„Sætishluturinn, á erlendum málum kvóti, er grunnhugtak í STV-aðferðinni. Hann er oftast fundinn með því að deila tölu gildra kjörseðla
með tölu sem er einum hærri en tala fulltrúa sem velja skal og hækka útkomuna í næstu heiltölu fyrir ofan. Þetta er skilgreining hans í
íslensku lögunum. Deilitalan í stjórnlagaþingskosningunni er 25+1 þ.e. 26 og á grundvelli úrslita kosningarinnar reiknast sætishluturinn vera
3.167 atkvæði. Það er grundvallareiginleiki sætishlutarins að hann er minnsta heiltala þess efnis að aldrei geti fleiri frambjóðendur en
jafnmargir og kjósa skal, hér 25, fengið atkvæðafylgi sem er jafnt eða hærra en sætishluturinn. Þetta er mikilvægt að hafa í huga.Eins og fyrr
segir byggir STV-aðferðin á því að atkvæði eða atkvæðabrot eru, svo lengi sem unnt er, færð frá þeim, sem fá fylgi yfir sætishlut eða frá þeim
sem dæmdir eru úr leik, í samræmi við næsta tiltæka val viðkomandi kjósenda. Væntingin er sú að málalyktir verði þær að þeir nái að lokum
einir kjöri sem náð hafa sætishlut. Skoða má einfalt dæmi.
Dæmi 1: Kjósa skal 2 fulltrúa, 3 eru í kjöri en kjósendur aðeins 5. Þá er sætishluturinn fengin með því að deila 5 með þremur (2+1 )og hækka
upp í næstu heiltölu sem er þá 2. Sætishlutur er því 2. Köllum frambjóðendurna A, B og C og segjum að A hafi fengið 3 atkvæði að 1. vali en
B og C sitt atkvæðið hvor. A er yfir sætishlut og nær strax kjöri og skilur eftir sig kúf upp á 3-2=1 atkvæði. Það fer eftir 3. vali hinna þriggja
kjósenda hans hvert atkvæðið færist. Segjum í þessu einfalda dæmi að allir 3 kjósendur A hafi valið B að 2. vali. Þá fer umframatkvæðið
þangað óskert og B nær kjöri enda nú með 2 atkvæði. Eftir færsluna eru því A og B báðir með sætishlut, 2 atkvæði, en 5. atkvæðið situr eftir
hjá C. Niðurstaðan er því eins og best verður á kosið, báðir hinna kjörnu fá sæti út á fullan sætishlut.
En því miður verða þetta sjaldnast málalyktirnar í reynd. Ástæðan er einfaldlega sú að kjósendur raða í fæstum kosningum nægilega mörgum
frambjóðendum.
Dæmi 2: Breytum dæmi 1 lítillega. Segjum að einn af kjósendum A hafi ekki sett nein önnur nöfn á seðil sinn. Þá færist ekki heilt atkvæði
lengur frá A til B heldur einungis 2/3 atkvæðis. Það nægir B ekki til að ná kjöri að svo komnu máli, þar sem hann er nú aðeins með 1 2/3
atkvæði. Þá er frambjóðandi C útilokaður og atkvæði hans fært til þess sem þar er að næsta vali. Segjum að í 2. vali á þessum seðli sé A
tilgreindur, en hann hefur þegar verið kjörinn. Þá er horft á 3. val þessa eina kjósanda C en sem ætti að réttu lagi að vera B, en gerum ráð
fyrir að þar sé eyða hjá kjósandanum. Þá dagar þetta atkvæði uppi. Talningunni lýkur engu að síður þar sem nú situr B einn eftir og hann fær
sætið enda þótt hann skorti þriðjung atkvæðis til að ná fullum sætishlut. Ástæðan er sú að 1 1/3 atkvæði hefur ekki tekist að færa á
frambjóðanda sem kemur enn til greina.
Kjósendur í stjórnlagaþingskosningunni voru óvenju duglegir að raða frambjóðendum en að meðaltali voru 14,8 frambjóðendur tilnefndir á
hverjum seðli. Í kosningunni reyndust tæp 17% atkvæða, eða réttara sagt atkvæðisgilda, ekki rata á leiðarenda. Þetta er lágt hlutfall m.v. hinn
mikla fjölda frambjóðenda sem nam 522. En afleiðingin var engu að síður sú að síðustu 14 frambjóðendurnir, sem náðu kjöri, höfðu ekki
hlotið tilfærð næg atkvæði til að eiga fyrir fullum sætishlut og höfðu þó – eins og lögin mæla fyrir um – öll færanleg atkvæði verið færð til 25
efstu frambjóðendanna. Engin atkvæði sátu að lokum eftir hjá hinum 497 sem ekki náðu kjöri.
Síðasta sætið. Sá frambjóðandi sem síðastur var kjörinn, Dögg Harðardóttir, var undir lokin komin með 1995,77187 atkvæðisgildi. Íris Lind
Sæmundsdóttir, sem var næst því að ná kjöri, var með 1929,59223 atkvæðisgildi þegar hún þurfti að víkja. Atkvæði hennar voru þá færð til
hinna 14 sem enn voru með í leiknum. Þar af fékk Dögg 29,72332 atkvæðisgildi frá kjósendum Írisar. Að þessum atkvæðisgildum
frádregnum var staða Daggar 1995,77187 - 29,72332 = 1966,04855 atkvæðisgildi, þegar Dögg og Íris Lind voru bornar saman til að ákveða
hvor þeirra hlyti 25. sætið. Hér hafði Dögg vinninginn með 36,45632 atkvæðisgildi umfram Írisi Lind.“
https://www.haestirettur.is/akvardanir/2011/
9/14