7/17/2020 Ákvarðanir 2011 Um úthlutunarreglu 14. gr. laga nr. 90/2010 kom þetta fram í greinargerð landskjörstjórnar: „Rétt er að undirstrika að 1. mgr. 14. gr. gerir ráð fyrir því að frambjóðendum geti verið úthlutað sæti með tvennum hætti, samkvæmt 5. tölulið eða samkvæmt 8. tölulið ákvæðisins. Í kæru sinni vísar kærandi fyrst til 2. tölul. 1. mgr. 14. gr. laganna en hann hljóðar svo: „2. Sætishlutur: Ákvarða skal sætishlut með þeim hætti að deila fyrst heildartölu gildra kjörseðla með 26. Tekið skal heiltölugildið af útkomunni, þ.e. leif skal felld brott. Að því búnu skal bæta einum við og nefnist sú útkoma sætishlutur.“ Eins og fram er komið reyndist sætishluturinn réttilega ákveðinn 3.167 atkvæði. Þá vísar kærandi næst til 5. töluliðar, en hann hljóðar svo: „5. Úthlutun sæta: Jafnóðum og í ljós kemur að atkvæðatala frambjóðanda er jöfn eða hærri en nemur sætishlutnum skal frambjóðandanum úthlutað sæti. Á þetta við hvort sem er í upphafi eða síðar þegar beitt er ákvæðum 6. og 7. tölul.“ Orðrétt kemur fram í kæru „að úthluta skuli frambjóðanda sæti þegar atkvæðatala hans er orðin jöfn eða hærri en sætishluturinn. Er sérstaklega vikið að því að þetta ákvæði eigi einnig við um þegar beitt er ákvæðum 6. og 7. töluliðar.“ Þá heldur kærandi því enn fremur fram að: „Af þessu leiðir að skilyrði þess að frambjóðandi hafi náð kosningu til stjórnlagaþings er að hann hafi fengið að lágmarki 3.167 atkvæði sem jafngildir sætishlutnum.“ Þetta er rétt en einungis að því leyti sem lýtur að úthlutun samkvæmt 5. tölulið. Í kærunni er litið fram hjá því að sætum er einnig úthlutað samkvæmt 8. tölulið. Í 8. tölulið eru svohljóðandi fyrirmæli (undirstrikun hér): „8. Lok úthlutunar: Beita skal ákvæðum 6. og 7. tölul. svo lengi sem við á en þó þannig að ákvæði 6. tölul. hafi ávallt forgang. Þegar tala þeirra frambjóðenda sem enn koma til álita að hljóta sæti er orðin jöfn tölu þeirra 25 sæta sem eftir er að ráðstafa skal sætunum úthlutað til þessara frambjóðenda án frekari útreikninga.“ Samkvæmt þessu er ótvírætt að sætum skuli að lokum úthlutað en til þess komi fyrst þá þegar ekki verður lengur úthlutað samkvæmt fyrri ákvæðum, sbr. undirstrikuðu orðin „svo lengi sem við á“. Kærandi bendi réttilega á að 11 frambjóðendur hafi hlotið kosningu samkvæmt 5. tölulið og jafnframt að hinir 14 „hafa fengið útgefin kjörbréf“. Jafnframt megi segja að hann hafi rétt fyrir sér þegar hann segi að þessir 14 hafi fengið „færri atkvæði en áskilið er í 14. gr. laganna, þegar beitt hafði verið ákvæðum 6. og 7. töluliðar“, það er ef hann væri með þessu að vísa til þess að þeir hafi hlotið færri atkvæði en nemur sætishlut þegar úrræði 6. og 7. töluliðar hefði verið beitt til hlítar. Kærandi dragi hins vegar þá röngu ályktun að umræddir 14 frambjóðendur hafi ekki náð kosningu til stjórnlagaþings. Þvert á móti hafi þeir verið rétt kjörnir samkvæmt ótvíræðum ákvæðum 8. töluliðar. Meðfylgjandi greinargerð Landskjörstjórnar fylgir til frekari upplýsingar umfjöllun um nokkrar erlendar fyrirmyndir. Í fylgiskjali með greinargerðinni var enn fremur „BriefingNote on the Election of Candiates With and Without Quota of Votes“ eftir dr. JamesGilmour. Samkvæmt framansögðu er það afstaða landskjörstjórnar að úthlutun sæta til fulltrúa á stjórnlagaþingi hafi að öllu leyti verið í samræmi við fyrirmæli 1. mgr. 14. gr. laga um stjórnlagaþing, sbr. einkum 5. og 8. tölulið þess ákvæðis. Um 8. Um þá kæru Skafta Harðarsonar að talning atkvæða sé haldin annmörkum þar sem hún hafi farið fram í vélum sem enginn vissa sé fyrir hendi um að telji rétt tekur landskjörstjórn fram í greinargerð sinni 22. desember 2010 að hún telji að 2. mgr. 14. gr. laga um stjórnlagaþing verði ekki skýrð á annan hátt en að hún feli í sér ótvíræða heimild til þess að „beita rafrænum aðferðum við talningu og útreikning á því hver hafi náð kjöri“. Í því felist nánar hvernig skuli annars vegar safna saman upplýsingum af kjörseðli og hins vegar reikna út niðurstöðuna. Í því sambandi komi tvær leiðir til greina, annars vegar að auðkennistölur séu slegnar inn handvirkt inn í gagnagrunn og síðan lesi viðurkenndur hugbúnaður úr niðurstöðunni, og hins vegar, eins og gert var í kosningum til stjórnlagaþings, að tekin sé ljósmynd af hverjum seðli með sérstökum myndbúnaði og síðan sé viðurkennt hugbúnaðarkerfi notað til að greina auðkennistölur og fá aðstoð mannsaugans þegar vafi leiki á greiningunni og að lokum að reikna út niðurstöðuna. Kærandi telji að innsláttur þar sem stuðst sé við mannsaugað hljóti að vera öruggari en þegar notaður sé umræddur vélbúnaður. Staðhæfingar kæranda séu ekki studdar neinum gögnum eða rökum sem geri þær sennilegar. Raunar sé það svo að samkvæmt þeim upplýsingum sem landskjörstjórn hafi aflað sér sé þessu þveröfugt farið vegna villuhættu við innslátt. Þar að auki stangist sjónarmið kæranda á við skýr lagafyrirmæli eins og fram sé komið. Landskjörstjórn bendir á að skönnun með vélbúnaði af þeim toga sem hér um ræðir hafi verið þekkt lengi og notuð áður við skönnun atkvæðaseðla, með annars í kosningum í Skotlandi 2007. Þá sé skönnun talna eða tákna í sama tilgangi einnig þekkt í öðru samhengi. Flestir þekki í því sambandi skönnun til dæmis lottómiða og skattframtala. Til að tryggja áreiðanleika skönnunarinnar hafi við undirbúning talningarinnar verið safnað saman hér á landi sýnishornum af handskrifuðum tölum frá 0-9. Alls hafi verið safnað handrituðum tölum frá 90 einstaklingum á aldrinum 18-84 ára og hafi kynjahlutfall verið nokkuð jafnt og hlutfall rétthendra og örvhendra það sama og þekkt sé á Íslandi. Tilgangurinn með því að safna sýnishornum af rithönd Íslendinga hafi verið að geta stillt vél- og hugbúnað með tilliti til aðstæðna hér á landi. Auk þess hafi auðkennistölur frambjóðenda, sem voru fjögurra stafa, verið valdar sérstaklega með tilliti til þess að draga úr ruglingshættu og auðvelda lestur þeirra. Talning atkvæða hafi farið fram með þeim hætti að seðlar hafi verið teknir upp úr kjörkössum og settir í bunka í þar til gerða bakka. Tekin hafi verið mynd af hverjum seðli í hverjum bunka þannig að hægt yrði að finna hann aftur til frekari athugunar. Staðfesting á að vélbúnaðurinn hefði lesið auðkennistölur rétt hafi verið með tvennum hætti. Fyrst með grófflokkun þar sem starfsmenn verktaka, undir eftirliti fulltrúa landskjörstjórnar, hafi lesið einstaka tölustafi af skjá og staðfest töluna eða komið með aðra tillögu. Síðan hafi hver seðill verið metinn með því að varpa honum upp á skjá og starfsmaður verktaka og fulltrúi landskjörstjórnar staðfest auðkennistölu eða eftir atvikum gefið honum merkingu um frekari athugun. Sú athugun hafi farið fram á sérstökum skjá þar sem fulltrúi https://www.haestirettur.is/akvardanir/2011/ 10/14

Select target paragraph3