7/17/2020
Ákvarðanir 2011
landskjörstjórn þekki engin dæmi þess að safnað hafi verið í eina skrá upplýsingum um nöfn kjósenda og auðkennisnúmer kjörseðils, enda
stæðist slíkt ekki lög. Hinni einkvæmu númeraröð hafi eingöngu verið ætlað að tryggja öryggi við framkvæmd kosninganna.
Í bréfi innanríkisráðuneytis til Hæstaréttar 10. janúar 2011 segir að auðkennistáknið á seðlinum hafi verið svokallað strikamerki en það sé
samansett úr dökkum strikum og ljósum bilum sem tákni þá talnaröð sem fram komi neðan við strikin. Þannig hafi ekki verið um tvenns
konar merkingar á seðlinum að ræða, þ.e. annars vegar strikamerki og hins vegar númeraröð, heldur sé um að ræða eitt auðkennistákn
samansett úr strikum og talnaröð, þar sem strikin séu myndræn framsetning talnaraðarinnar undir strikunum.
Í bréfi formanns landskjörstjórnar til Hæstaréttar 13. janúar 2011 kom fram að til þess að fyrirbyggja misskilning væri áréttað að talnaröð
kjörseðlis geymdi jafnframt raðnúmer hans. Einnig yrði ráðið að númer kjörseðla væri í hlaupandi samfelldri röð. Meðfylgjandi bréfi
landskjörstjórnar til Hæstaréttar 17. janúar 2011 var tölvupóstur frá starfsmanni verktakans sem aðstoðaði landskjörstjórn við talningu
atkvæða til ritara landskjörstjórnar en tölvupósturinn var sendur 13. janúar 2011. Í tölvupóstinum kom fram að kjörseðlarnir hafi allir verið
númeraðir með einkvæmu númeri, þ.e. hvert númer kemur aðeins fyrir einu sinni. Hafi númer seðlanna byrjað á 100001 og endað á 378000.
Í bréfi landskjörstjórnar til Hæstaréttar 17. janúar 2011 kemur fram að það sé mat landskjörstjórnar að í þeim kosningum sem fram fóru 27.
nóvember 2010 hafi verið útilokað að rekja hvernig einstakir kjósendur vörðu atkvæði sínu. Að mati landskjörstjórnar sé eingöngu til staðar
fræðilegur möguleiki sem sé háður svo mörgum og margháttuðum skilyrðum að hann teljist ekki sennilegur. Sé þá einkum haft í huga
skipulag kosninga á kjörfundi og þær öryggisráðstafanir sem gætt hafi verið við talninguna og eftir að henni lauk.
Beri þar í fyrsta lagi að nefna að ekki hafi verið haldin skrá yfir þá kjörseðla sem sendir hafi verið sveitarfélögum og þá ekki heldur hvernig
þeim hafi verið deilt á einstakar kjördeildir þegar um slíkt hafi verið að ræða. Að mati landskjörstjórnar sé því að þessu leyti útilokað að rekja
megi kjörseðil eða kjörseðla til einstakra kjördeilda.
Í öðru lagi afhenti starfsfólk kjörstjórna kjósendum kjörseðla þegar þeir gáfu sig fram á kjörfundi. Tilviljun ein hafi ráðið því hvaða kjörseðill
var afhentur hverjum kjósanda. Landskjörstjórn sé ekki kunnugt um að í einstökum kjördeildum hafi verið haldnar skrár eða listar um að
tilteknir kjörseðlar hafi verið afhentir tilteknum kjósendum. Enda yrði slík háttsemi kjörstjórnarmanns að öllum líkindum talin refsiverð
samkvæmt 124. gr. eða 126. gr. laga nr. 24/2000, sbr. 2. mgr. 15. gr. laga nr. 90/2010. Að mati landskjörstjórnar hafi engar sönnur verið
færðar á þá staðhæfingu Þorgríms S. Þorgrímssonar frá 3. janúar sl. að haldnir hafi verið sérstakir listar yfir kjósendur.
Í þriðja lagi megi hugsa sér þann möguleika að aðrir á kjörfundi hefðu geta séð auðkennisnúmer kjörseðils annars kjósanda. Einnig sé sá
möguleiki hugsanlegur að kjósandi sjálfur hafi skráð hjá sér raðnúmer þess kjörseðils sem hann fékk afhentan. Rétt sé að undirstrika að í því
sambandi gildi einu hvort auðkennistákn seðils hafi jafnframt falið í sér raðnúmer hans eða annars konar auðkennistákn eða númer. Að mati
landskjörstjórnar hefði ekki verið unnt að skrá niður auðkenni eða raðtölu kjörseðils með öðrum hætti en hér greinir.
Til þess að unnt sé að halda því fram að leynd kosninganna hafi verið rofin verði einhver að hafa búið yfir upplýsingum um auðkennisnúmer
kjörseðils tiltekins kjósanda, hafa átt möguleika annars vegar á því að komast í gagnagrunn landskjörstjórnar um kosningarnar, á meðan á
talningu stóð eða að þeim loknum eða komast í kjörgögnin sjálf. Til viðbótar þessu hefði sá hinn sami þurft að hafa þekkingu á gerð
strikamerkisins, geta tengt auðkennisnúmer seðilsins við tiltekinn einstakling og hafa tiltekna lágmarks þekkingu á uppbyggingu og notkun
gagnagrunna, þ. á m þess sem notaður var í þessu tilviki.
Um 2. Í tilefni af kæru Þorgríms S. Þorgrímssonar um að kjósendur hafi verið sviptir rétti til að kjósa í annarri kjördeild tekur landskjörstjórn
fram í greinargerð sinni 22. desember 2010 að afsal kosningaréttar í kjördeild þar sem kjósandi sé á kjörskrá og ósk um að fá að kjósa í
annarri kjördeild innan sama kjördæmis, skuli gerð á sérstöku eyðublaði til þeirrar kjörstjórnar þar sem kjósandi óskar eftir því að fá að neyta
kosningaréttar síns, sbr. 2.tölul. 1. mgr. 80. gr. laga nr. 24/2000 og 2. mgr. 80. gr. sömu laga. Á vegum landskjörstjórnar hafi ekki verið fjallað
um eða gefin fyrirmæli til kjörstjórna um synjun á afsali kosningaréttar kjósenda samkvæmt nefndri lagaheimild. Þá sé landskjörstjórn ekki
heldur kunnugt um að kjósendum hafi verið synjað um staðfestingu á afsali kosningaréttar í kjördeild sinni og að fá að neyta atkvæðisréttar
síns í annarri kjördeild. Landskjörstjórn hafi ekki haft afskipti af málum þar sem kjósendur hafi óskað eftir því að fá að kjósa í annarri
kjördeild en þeir séu á kjörskrá.
Í greinargerð dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins 22. desember 2010 er tekið fram að ein breytinganna, sem gerðar voru á lögunum um
stjórnlagaþing með lögum nr. 120/2010, hafi verið að ráðherra var heimilað að víkja frá ákvæðum laganna um rafræna kjörskrá ef ekki
reyndist unnt að beita þeim ákvæðum sbr. 15. gr. a. Um gerð kjörskrár vegna atkvæðagreiðslunnar á kjörfundi færi skv. 2. mgr. 5. gr. laganna
um stjórnlagaþing og VI. kafla laganna um kosningar til Alþingis eftir því sem við gæti átt. Mörk kjördæma, kjörstaða og kjördeilda skyldu
vera hin sömu og í síðustu Alþingiskosningum. Með auglýsingu í Lögbirtingablaðinu þann 23. september 2010 tilkynnti ráðherra að ekki yrði
notast við rafræna kjörskrá við kosningarnar. Af því leiddi að landið hafi ekki verið eitt kjördæmi heldur voru mörk kjördæma, kjörstaðir og
kjördeildir hin sömu og í síðustu Alþingiskosningum. Samkvæmt 2. tölul. 2. mgr. 80. gr. laganna um kosningar til Alþingis skyldi afsal
kosningaréttar í kjördeild þar sem kjósandi var á kjörskrá og ósk um að fá að kjósa í annarri kjördeild innan sama kjördæmis gerð á sérstöku
eyðublaði og skilað til þeirrar kjörstjórnar þar sem kjósandi óskaði eftir því að fá að neyta kosningaréttar síns. Engin fyrirmæli um að þessi
réttur væri ekki til staðar hafi verið gefin af hálfu ráðuneytisins við kosningarnar til stjórnlagaþings.
Um 3. Vegna kæru Þorgríms S. Þorgrímssonar og Óðins Sigþórssonar um að kosningarnar hafi ekki verið leynilegar þar sem hefðbundnir
kjörklefar hafi ekki verið notaðir við kosningarnar, heldur hafi hver kjósandi greitt atkvæði í opnu rými ásamt öðrum kjósendum við borð
sem á voru 60 sm há pappaskilrúm, sem sett voru á þrjár hliðar borðs til að skilja að kjósendur, tekur landskjörstjórn fram: Að svo miklu
leyti sem landskjörstjórn sé mögulegt að tjá sig um þennan lið kærunnar sé það mat hennar að athugasemdir kæranda lúti ekki að því að
kjósandi hafi ekki getað kosið í einrúmi heldur hinu að aðrir á kjörfundi gætu hafa séð á kjörseðilinn hefðu þeir „kíkt“ á hann og þar með
hafi skilyrði um leynd ekki verið uppfyllt. Hér er því ekki vísað til almenns ágalla við framkvæmd kosningar heldur fremur til þess að unnt
hefði verið að sjá á kjörseðil kjósanda, ef vilji hefði staðið til þess. Kæra af þessum toga geti því að mati landskjörstjórnar aðeins komið til
https://www.haestirettur.is/akvardanir/2011/
5/14