7/17/2020 Ákvarðanir 2011 kjörklefa sem notuð var við kosningarnar til stjórnlagaþings hafi uppfyllt skilyrði 69. gr. laga um kosningar til Alþingis að svo miklu leyti sem greinin átti við. Ráðuneytið veki athygli á því að engin kvörtun hafi komið fram, meðan á kosningunni stóð, um að kjósandi gæti ekki neytt kosningaréttar síns með leynilegum hætti. Í bréfi landskjörstjórnar til Hæstaréttar 10. janúar 2011 er tekið fram að við undirbúning og skipulagningu kosninganna hafi verið óhjákvæmilegt að gera ráðstafanir sem hafi verið til þess fallnar að mæta þeirri óvæntu stöðu sem upphafi verið komin þegar í ljós hafi komið að 522 einstaklingar væru í framboði og stutt til kosninga. Hafi verið á því byggt að kosningaþátttaka yrði sambærileg við það sem almennt þekktist í kosningum hér á landi. hafi þannig verið leitast við að kosningaathöfnin gæti gengið eins greiðlega fyrir sig og unnt væri að gættri kröfu 4. gr. laga um stjórnlagaþing um leynilegar kosningar. Um 4. Vegna kæru Þorgríms S. Þorgrímssonar og Óðins Sigþórssonar að kjósendum hafi verið bannað að brjóta kjörseðilinn saman eftir að hann hafði verið útfylltur tekur landskjörstjórn fram í greinargerð sinni 22. desember 2010 að ákvæði 10. gr. laga nr. 90/2010 geymi sérstök ákvæði um gerð og prentun kjörseðla. Víki þau ákvæði til hliðar fyrirmælum XI. kafla laga um kosningar til Alþingis, þar sem fjallað sé um gerð kjörseðils í almennum kosningum til Alþingis. Af þessu leiði að ekki hafi verið haft sérstakt brot í seðlinum eða hann brotinn saman eins og mælt sé fyrir um í 53. gr. laga um kosningar til Alþingis en þau ákvæði hafi ekki átt við eins og áður segi. Í skýringum við 2. gr. frumvarps þess sem varð að lögum nr. 120/2010 og breytti 2. mgr. 10. gr. laga um stjórnlagaþing var við það miðað að kjörseðillinn yrði á A4 blaði. Ekki hafi verið gert ráð fyrir því að hann yrði samanbrotinn líkt og í kosningum til Alþingis. Ákvæði 85. gr. laga um kosningar til Alþingis geri ráð fyrir því að þegar kjósandi hafi lokið kosningaathöfninni brjóti hann seðilinn í „sama brot og hann var í þegar hann tók við honum“. Hins vegar sé í 2. mgr. 10. gr. laga um stjórnlagaþing ekki gert ráð fyrir því að kjósandi fái seðilinn samanbrotinn í hendur. Bar kjósanda að koma seðlinum þannig í atkvæðakassann án þess að hann léti sjá á hann, sbr. enn fremur 87. gr. laga um kosningar til Alþingis. Ljóst sé samkvæmt framansögðu að krafan um samanbrotinn seðil taki mið af því að um sé að ræða kosningar til Alþingis þar sem kosningaathöfnin felist í því að merkja X við tiltekin stjórnmálasamtök og setja seðilinn samanbrotinn í sérstaka rauf ofan á kjörkassanum. Í kosningum til stjórnlagaþings hafi kjósendur átt möguleika á að velja frambjóðendur með því að rita auðkennistölur þeirra í allt að 25 vallínur. Með því að ákveða við gerð hans að hafa ekki umrætt brot í seðlinum og snúa bakhlið hans upp, sbr. 2. mgr. 10. gr. laga um stjórnlagaþing, hafi átt að vera tryggt að kosningin yrði leynileg að þessu leyti. Þá verði að líta svo á að með áður nefndri rennu á kjörkassanum hafi kjósanda verið gert kleift að koma kjörseðlinum í kjörkassann án þess að eiga á hættu að sýna hann. Í greinargerð d��msmála- og mannréttindaráðuneytisins 22. desember 2010 er tekið fram að í 10. gr. laga nr. 90/2010 væri gerð grein fyrir því hvernig kjörseðill skyldi gerður. Um gerð hans hafi því gilt ákvæði laga nr. 90/2010 og eigi ákvæði laga um kosningar til Alþingis þar sem fjallað er um gerð kjörseðla ekki við. Í 10. gr. laganna sé ekki gert ráð fyrir að kjörseðill sé brotinn saman eins og gert sé í 53. gr. laga nr. 24/2000. Þannig hafi þá heldur ekki verið gert ráð fyrir að kjósendur brytu seðilinn saman eins og kveðið sé á um í 85. gr. laga nr. 24/2000 heldur kæmu honum í kjörkassann í því formi sem þeir fengu hann í hendur, þ.e. ósamanbrotinn. Í 87. gr. sömu laga sé kveðið á um að láti kjósandi sjá hvað á seðli hans er ónýtist seðillinn og megi ekki leggja hann í atkvæðakassann. Kjörkassar þeir sem notaðir voru við kosningarnar til stjórnlagaþings hafi sérstaklega verið hannaðir til að taka við kjörseðlum eins og þeim sem notaðir voru í kosningunum til stjórnlagaþings. Með því að hafa sérstaka rennu framan á kjörkassanum hafi kjósanda verið gert kleift að koma kjörseðlinum í kjörkassann ósamanbrotnum án þess að sýna hann og hafi því ekki verið brotið gegn 87. gr. laga nr. 24/2000. Þá telur ráðuneytið að sú aðferð sem viðhöfð var við kosningar til stjórnlagaþings, um að kjósendur rituðu auðkennistölur frambjóðenda á kjörseðilinn en ekki nöfn þeirra hafi enn frekar tryggt leynd kosninganna. Um 5. Í tilefni af kæru Þorgríms S. Þorgrímssonar þess efnis að þeir pappírskjörkassar sem notaðir hafi verið í stað hefðbundinna kjörkassa hafi ekki uppfyllt skilyrði 2. mgr. 69. gr. laga nr. 24/2000, sbr. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 90/2010, bendir landskjörstjórn á að umræddir kjörkassar hafi ekki verið úr pappa heldur úr sérstöku plastefni. Kassarnir hafi sérstaklega verið hannaðir til þess að taka á móti kjörseðlum og hafi verið notaðir í kosningum annars staðar, m.a. í Skotlandi. Á hlið hvers kjörkassa hafi verið sérstök rauf og við hana fest sérstök renna til þess að taka á móti kjörseðlinum. Þessi umbúnaður ásamt sérstökum flipum hafi tryggt að ekki hafi verið hægt að ná kjörseðli úr kjörkassanum án þess að opna hann. Auk þessa hafi starfsfólk á vegum kjörstjórna haft sérstakt eftirlit með umgengni við kjörkassa. Að loknum kjörfundi hafi rennan verið tekin af kjörkassanum og þar til gerður flipi notaður til þess að læsa kassanum. Yfir flipann hafi síðan verið sett sérstakt innsigli sem dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hafði látið útbúa, sbr. enn fremur fyrirmæli 95. gr. laga um kosningar til Alþingis að því er varðar frágang kjörstjórnar á kjörkössum og öðrum kjörgögnum. Af hálfu ráðuneytisins hafi verið útbúnar sérstakar leiðbeiningar til kjörstjórna um samsetningu kjörkassa og hvernig þeim skyldi læst. Það sé mat landskjörstjórnar að með framangreindum hætti hafi kjörkassar verið tryggilega lokaðir í skilningi 2. mgr. 69. gr. laga um kosningar til Alþingis. Að loknum kjörfundi kl. 22 laugardaginn 27. nóvember sl. hafi móttaka Landskjörstjórnar hafist á kjörkössum og kjörgögnum, sem staðið hafi fram til morguns næsta dag. Haldin hafi verið sérstök skrá um staðfestingu á móttökunni. Af hálfu landskjörstjórnar hafi þess ekki orðið vart að innsigli hafi verið rofin eða að átt hafi verið við kjörkassa. Verði því ekki annað ráðið en að eftirlit með framkvæmd kosninganna af hálfu einstakra kjörstjórna hafi verið í samræmi við lög. Þessu til viðbótar bendi uppgjör landskjörstjórnar á kosningunum sem birt hafi verið á vef landskjörstjórnar ekki til annars en að niðurstöður fjölda atkvæðaseðla í kassa hafi nánast stemmt við fjölda greiddra atkvæða á kjörfundi, en þar hafi skeikað sex atkvæðum sem vantaði. Í greinargerð dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins 22. desember 2010 er tekið fram að í 1. mgr. 11. gr. laga nr. 90/2010 skuli beita lögum nr. 24/2000 um kjördeildir, kjörstaði og framkvæmd atkvæðagreiðslunnar við stjórnlagaþing eftir því sem við á. Í 2. mgr. 69. gr. laga nr. 24/2000 komi fram að kjörkassi skuli vera hæfilega stór og þannig búinn að ekki sé unnt að ná kjörseðli úr honum án þess að opna hann og að unnt sé að læsa honum. Þeir kjörkassar sem notaðir hafi verið við kosningar til stjórnlagaþings hafi að mati ráðuneytisins uppfyllt þessi skilyrði. Kassarnir séu úr plastefni og sérstaklega hannaðir til að taka á móti kjörseðlum eins og þeim sem notaðir voru við þessar kosningar. Kassarnir hafi verið settir saman á ákveðinn hátt sbr. meðfylgjandi leiðbeiningar og hafi þeim verið læst með sérstökum flipum. Sérstök rauf https://www.haestirettur.is/akvardanir/2011/ 7/14

Select target paragraph3