7/17/2020
Ákvarðanir 2011
og renna hafi verið á hlið kjörkassans þar sem gert hafi verið ráð fyrir að kjörseðlar færu inn í hann. Ekki hafi verið unnt að ná úr kassanum
kjörseðli í gegnum raufina né á annan hátt án þess að losa kassann í sundur. Til þess að tryggja öryggi kassanna og meðferð þeirra frá því að
þeir færu úr höndum kjörstjórna sveitarfélaganna og þar til þeir væru komnir í hendur landskjörstjórnar hafi kassarnir verið merktir, sérstakir
öryggislímmiðar límdir yfir raufina eftir að rennan hafði verið fjarlægð af þeim, límdir hafi verið vasar á kjörkassana fyrir fylgiseðil sem hafi
verið áritaður þegar kassinn skipti um hendur til áframhaldandi flutnings allt til þess er landskjörstjórn veitti honum móttöku. Embætti
ríkislögreglustjóra hafi annast flutning kjörkassanna. Ástæða þess að fengin hafi verið ný gerð kjörkassa hafi verið sú að kjörseðillinn hafi
verið með öðru sniði en venjulega tíðkast og of stór til að komast í gegnum raufina á venjulegum kjörkössum. Tekin hafi verið ákvörðun um
að fram færi rafræn talning á atkvæðum og hefði landskjörstjórn samið við fyrirtækið Skyggni um að annast talningu og uppgjör
kosninganna. Breskur undirverktaki Skyggnis, fyrirtækið DRS, hefði lagt til skanna til að skanna kjörseðlana, hugbúnað og að hluta mannafla
til að annast talninguna. Þá hefði fyrirtækið einnig útvegað þá kjörkassa sem notaðir hafi verið við kosninguna en þeir hafi verið sérhannaðir
til að taka við kjörseðlum eins og þeim sem notaðir hafi verið við kosningar til stjórnlagaþings eins og áður hefur komið fram.
Um 6. Vegna kæru Skafta Harðarsonar um að frambjóðendum hafi ekki verið heimilað og gert kleift að hafa umboðsmann viðstaddan
kosninguna sjálfa svo og talningu atkvæða tekur landskjörstjórn fram að í 2. mgr. 13. gr. laga nr. 90/2010 sé mælt svo fyrir að talning
atkvæða í kosningum til stjórnlagaþings skuli fara fram fyrir opnum dyrum hjá landskjörstjórn. Þetta ákvæði hafi tekið breytingum í
meðförum þingsins frá hinni upphaflegu útgáfu frumvarpsins án þess að finna megi skýringu á þeim breytingum sem urðu á ákvæðinu.
Ákvæði 2. mgr. 13. gr. eigi sér samsvörun í 1. mgr. 98. gr. laga um kosningar til Alþingis sem geri ráð fyrir því að talning atkvæða skuli fara
„fram fyrir opnum dyrum svo að kjósendum gefist kostur á að vera við eftir því sem húsrúm leyfir.“ Í 2. mgr. 98. gr. sé fjallað um
umboðsmenn lista. Af framangreindum breytingum verði helst ráðið að ákvæði 39. gr. laga um kosningar til Alþingis ættu hér ekki við. Þess í
stað skyldi talning fara fram fyrir opnum dyrum hjá landskjörstjórn. Hafi sú skipan ekki eingöngu tekið til frambjóðenda og mögulegra
umboðsmanna þeirra heldur einnig til kjósenda. Í kynningarblaði dómsmála- og mannréttindaráðuneytis, sem dreift hafi verið til allra heimila
í landinu 16. nóvember 2010 komi fram að talning atkvæða færi fram í Laugardalshöll í Reykjavík. Landskjörstjórn hafi birt á vef
sínum landskjor.is og á vefnum kosning.is auglýsingu 21. nóvember 2010 um talningu atkvæða og móttöku utankjörfundaratkvæða, sbr.
1. málsl. 1. mgr. 13. gr. laga um stjórnlagaþing. Fram komi í auglýsingunni að landskjörstjórn „komi saman að loknum kjörfundi kl. 22
laugardaginn 27. nóvember nk. til þess að opna atkvæðakassa og undirbúa talningu atkvæða í kosningum til stjórnlagaþings, sem fram fara
sama dag. Atkvæðin verða talin í Laugardalshöll, Engjavegi 8 í Reykjavík, og hefst talningin kl. 9, sunnudaginn 28. nóvember nk.“
Auglýsing sama efnis hafi birst enn fremur í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 23. nóvember 2010. Talningarstaðurinn hafi verið valinn með
það fyrir augum að almenningur gæti fylgst vel með framkvæmd talningarinnar. Meðfylgjandi var uppdráttur af talningarstaðnum.
Almenningur hafi hindrunarlaust geta gengið upp á svalir meðfram talningarsalnum og fylgst með talningu inn um glugga auk þess sem hægt
hafi verið að fylgjast með störfum landskjörstjórnar og starfsfólks á hennar vegum gegnum tvær stórar glerhurðir. Þannig hafi verið gerðar
viðeigandi ráðstafanir, í samræmi við ákvæði laga um stjórnlagaþing, til að frambjóðendur gætu fylgst með framkvæmd talningarinnar.
Í greinargerð dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins 22. desember 2010 er tekið fram að kosningar til stjórnlagaþings hafi um margt verið
frábrugðnar kosningum til Alþingis. Þannig hafi ekki verið um kosningar milli framboðslista að ræða eins og gert sé ráð fyrir í 39. gr. laga
um kosningar til Alþingis heldur hafi farið fram svokallað persónukjör þar sem kjósandi hafi getað valið úr hópi 522 einstaklinga sem buðu
sig fram. Ráðuneytið telur því ljóst að ákvæði 39. gr. laga um kosningar til Alþingis hafi ekki átt við um kosningar til stjórnlagaþings. Í
lögum nr. 90/2010 sé heldur ekki gert ráð fyrir því að frambjóðendur tilnefni hver um sig umboðsmann eða umboðsmenn við kosningarnar.
Ljóst sé að erfitt hefði verið að koma slíku kerfi við sökum fjölda frambjóðenda. Ef hver þeirra hefði tilnefnt tvo umboðsmenn hefðu
umboðsmenn orðið 1044. Þá bendir ráðuneytið á að atkvæði hafi verið talin á einum stað og skv. 2. mgr. 13. gr. laga um stjórnlagaþing hafi
talning atkvæða farið fram fyrir opnum dyrum hjá landskjörstjórn. Í samræmi við ákvæði laganna auglýsti landskjörstjórn þann 18. nóvember
sl. hvar og hvenær nefndin kæmi saman til að opna kjörkassa og hefja talningu atkvæða. Frambjóðendum hefði því gefist kostur á að vera
sjálfir viðstaddir talningu atkvæða.
Í bréfi landskjörstjórnar til Hæstaréttar 10. janúar 2011 er tekið fram að ekki hafi komið til þess að landskjörstjórn þyrfti að taka formlega
afstöðu til beiðna frambjóðenda um að mega vera viðstaddir talninguna sjálfa. Hefðu slíkar óskir komið fram, er ljóst að það hefði verið
verulegum vandkvæðum bundið að verða við þeim vegna takmarkaðs húsrúms, viðkvæms tækjabúnaðar og fjölda frambjóðenda. Hefði slíkt
reynst ómögulegt ef gæta hefði átt jafnræðis þeirra 522 frambjóðenda.
Í munnlegum málflutningi var formaður landskjörstjórnar spurður um það hvort landskjörstjörn hefði íhugað aðrar leiðir sem
framkvæmanlegar þóttu svo sem að bjóða frambjóðendum að sameinast um ákveðinn fjölda umboðsmanna eða draga með slembiúrtaki þá
umboðsmenn sem framkvæmanlegt var að hafa viðstadda talningu. Fram kom að þessir kostir hefðu ekki verið teknir til sérstakrar
umfjöllunar.
Um 7. Í tilefni af kæru Óðins Sigþórssonar um að kjörbréf hafi verið gefin út til fulltrúa sem hafi ekki hlotið tilskilinn atkvæðafjölda eða
svokallaðan sætishlut til þess að ná kosningu, tekur landskjörstjórn fram í greinargerð sinni 22. desember 2010 að í umræddum kosningum
hafi verið beitt svonefndri forgangsröðunaraðferð (e. Single Transferable Vote, STV). Eftir þær breytingar sem gerðar hafi verið á lögunum í
september 2010 hafi aðferðin verið efnislega samhljóða þeirri útgáfu STV - aðferðarinnar sem nefnd er á
ensku WeightedInclusive Gregory Method (WIGM), sem sé sú útgáfa sem algengust er og hafi t.d. verið tekin upp við kosningar til
héraðsráða
í
Skotlandi
2007
(The
Scottish
Local
GovernmentElections
Order
2007
No.
42, http://www.legislation.gov.uk/ssi/2007/42/contents/made). Íslenska heitið forgangsröðunaraðferð sé full víðfeðmt og geti átt við fleiri
tegundir aðferða. Verði hér því stuðst við nafngiftina STV-aðferð. Um talningu atkvæða og úthlutun sæta fari samkvæmt í 1. mgr. 14. gr. laga
nr. 90/2010. Orðrétt var þetta nánar útskýrt svo:
https://www.haestirettur.is/akvardanir/2011/
8/14